Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 27. september 2026 18:39 Andrea Marel Þorsteinsdóttir er teymisstjóri hjá Púlsinum. vísir/sigurjón Nýtt bráða- og viðbragðsteymi sem kallað er til vegna ofbeldis barna hefur þegar sannað gildi sitt að mati teymisstjóra. Málin varði allt frá hótunum á samfélagsmiðlum til skipulagðra árása.
Bráða- og viðbragðsteyminu Púlsinum var komið á fót í vor en það er samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, lögreglu og Barna- og fjölskyldustofu. Teymið er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Andrea Marel Þorsteinsdóttir leiðir úrræðið og hún segir greinilega þörf hafa verið til staðar. „Við erum alveg ofboðslega stolt af þeim árangri sem hefur náðst hingað til. Þetta er alltaf flókið og erfitt og það þarf að taka hvert mál fyrir sig en þetta samstarf hefur gengið alveg ofboðslega vel,“ segir Andrea. Teymið sinnir bráðaviðbragði og er kallað til aðstoðar til skemmri tíma á meðan beðið er eftir þjónustu til lengri tíma. Kallið hefur ýmist komið frá skólum, félagsmiðstöðum, félagsþjónustu eða lögreglu með samþykki forsjármanna barna. Andrea segir málin geta verið af ýmsum toga en teymið sinnir tíu til átján ára gömlum börnum. „Þetta geta verið mál sem að tengjast hótunum, þar sem börn eru að hóta öðrum börnum ofbeldi, ýmist bara í eigin persónu eða í gegnum samfélagsmiðla. Þar sem börn hafa beitt önnur börn ofbeldi eða kannski hópur hefur ráðist á önnur börn, skipulagðar árásir eða eitthvað slíkt.“ Vel tekið í aðstoðina Átök geti þá átt rætur að rekja til ágreinings í spjallhópum á samfélagsmiðlum. „Stundum hefur það þá leiðst út í að krakkar hafa kannski verið að sitja um einhvern einstakling eða veitast að þeim í eigin persónu líka, sem sagt láta verða af þessum hótunum um ofbeldi.“ Andrea segir börn hafa tekið vel í aðstoðina „Oft eru þetta einhver vinavandamál eða samskiptaörðugleikar, að það þurfi að finna barninu einhvern stað þar sem það getur virkjað styrkleikana sína. Fundið orkunni sinni einhvern farveg og nýtt tíma sinn á annan hátt heldur en að beita ofbeldi eða hótunum og læra kannski að leysa úr ágreiningi á annan hátt,“ segir Andrea Marel Þorsteinsdóttir, teymisstjóri hjá Púlsinum.
Ofbeldi gegn börnum Ofbeldi barna Skóla- og menntamál Samfélagsmiðlar Börn og uppeldi Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira