Fólk sé orðið leitt á því að sjá sömu flokkana hræra Eiður Þór Árnason skrifar 12. maí 2026 21:06 Baldur Borgþórsson, frambjóðandi Okkar borgar, og Ingimar Þór Friðriksson, oddviti framboðsins Góðan daginn. Vísir/Sigurjón Fulltrúar Okkar borgar og Góðan daginn segja skipulags- og samgöngumálin í brennidepli í komandi borgarstjórnarkosningum sem og rekstur Reykjavíkurborgar. Framboðin hafa mælst með minnst fylgi í könnunum og samkvæmt þeim vantar nokkuð upp á til þess að þau nái manni inn í borgarstjórn á laugardag.
Fulltrúar framboðanna tveggja ræddu stefnumál sín við Margréti Helgu Erlingsdóttur fréttamann í sérstökum kosningaþætti á Sýn en fulltrúar annarra framboða í Reykjavík munu mætast í kappræðum á miðvikudagskvöld klukkan 19:30. Baldur Borgþórsson situr í öðru sæti á lista Okkar borgar og segir að skipulagsmálin séu eitt stærsta viðfangsefnið í komandi kosningum. Hann gagnrýnir að til standi að reisa fleiri þúsund íbúðir í Grafarholti og Úlfársárdal þar sem hann er búsettur með tilheyrandi aukningu í þéttleika byggðar. Þá gerir hann einnig athugasemdir við að þétta eigi fleiri hverfi borgarinnar. „Ég myndi segja að þetta væri það brýnasta samhliða Borgarlínu, af því þetta er hluti af Borgarlínuverkefninu,“ segir Baldur. Frekar eigi að brjóta nýtt land undir íbúðauppbyggingu, til að mynda á Geldinganesi og Kjalarnesi. „Þetta er óafturkræft ef kosningar fara þannig núna að þetta verkefni heldur áfram. Þá verður fjöldaframleitt hér húsnæði sem enginn vill,“ segir Baldur. Slík útvíkkun borgarinnar myndi að hans sögn ekki auka þörfina fyrir uppbyggingu Borgarlínu. Komið í óefni Ingimar Þór Friðriksson, oddviti framboðsins Góðan daginn, segir það leggja mikla áherslu á rekstur borgarinnar. „Við viljum bæta reksturinn, alveg klárlega. Það er komið í óefni.“ „Auk þess viljum við bæta þjónustuna, bæta þjónustuferlin og það er líka hægt að spara með því að stytta ferlin og einfalda, innleiða gervigreind og sjálfvirkni í ferlin. Og síðan höfum við mikinn áhuga á að bæta þennan vinnustað, Reykjavíkurborg, að efla starfsfólkið, valdefla það og fá það með okkur í lið.“ Framboðið vilji nota árangursmælingar í borgarkerfinu og nýta þær sem hvata til góðra verka. Þá eigi að opna bókhald borgarinnar og nota það til að styðja við starfsemina. Bæta þurfi rekstur borgarinnar til að standa undir velferð og menningu. Skuldadagar hjá Vegagerðinni Ingimar segir Góðan daginn styðja uppbyggingu öflugra almenningssamgangna en með vissum fyrirvara. „Okkar afstaða er sú að auðvitað á að byggja upp öflugar almenningssamgöngur. Það er búin að vera mikil vinna í gangi en hún hefur verið svona tiltölulega einstrengingsleg og við viljum endurskoða ýmislegt, til dæmis viljum við ekki láta almenningssamgöngur ganga á rétt einkabílsins. Það hlýtur að vera hægt að gera þetta þannig að þetta vinni saman.“ Baldur fullyrðir að borgin geti sparað háar fjárhæðir með því að hætta við Borgarlínuna og bjóða í stað þess frítt í strætó. „Við ætlum einfaldlega að leysa þetta mál með því að krefja Vegagerðina um að þau skili þeim verkefnum sem hafa legið á hakanum frá því að gerður var samningur við sveitarfélögin 2011, þar sem hætt var við og sett í salt mjög viðamiklar breytingar á vegakerfinu, mislæg gatnamót, til dæmis Bústaðavegur og Reykjanesbraut og fleira. Nú ætlum við bara að innheimta. Þetta er orðið uppsafnað sem hefur legið á hakanum, sennilega 150-160 milljarðar, og við getum bara gert Reykjavík mjög fína,“ segir Baldur. Þá vilji Okkar borg sjá tvö bílastæði með hverri einustu nýjustu íbúð sem er byggð. Baldur segir framboðið einnig vilja draga úr komum hælisleitenda. „Við höfum litið á það sem svo að þetta sé bara orðið mikið meira en gott.“ Fólk sé ekki að kasta atkvæði sínu á glæ Í lok þáttarins fengu báðir frambjóðendur kost á því að sannfæra áhorfendur um ágæti framboðs síns. Fyrstur var Ingimar hjá Góðan daginn. „Við erum hópur sérfræðinga og höfum mikla reynslu af rekstri sveitarfélaga og breytingar í sveitarfélögum eru okkar hjartans mál. Við teljum okkur geta gert mikið gagn. Við erum þreytt á skotgröfunum. Við viljum meiri samvinnu. Við viljum meiri virðingu og traust á borgarstjórn og þetta er svona okkar megináhersla, að við erum bara að bjóða okkur fram sem við með okkar þekkingu og vonumst til að íbúar sjái að við séum góður kostur.“ Baldur segir svarið einfalt. „Þið eigið að kjósa Okkar borg af því að við erum að boða miklar breytingar. Við erum algjörlega saklaus af öllum þeim hrakverkum sem átt hafa sinn stað undanfarið og það er vegna þess að við ætlum að ganga beint í að uppfylla óskir borgarbúa sem að stóru leyti eru sammála okkur.“ „Við skorum á ykkur, ekki láta segja ykkur að þið séuð að henda atkvæði ykkar. Kjósið listann sem ykkur líst best á og stefnuna sem er að sjálfsögðu Okkar borg.“ Kjósendur eigi að senda skýr skilaboð: „Við erum orðin leið á því að þetta séu sömu fimm, sex flokkarnir sem hræra og gera ekkert. Þannig að ég segi bara látið þið vaða og það er X-R.“
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Okkar borg Góðan daginn Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira