Tilkynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði landsleik Sindri Sverrisson skrifar 13. maí 2026 14:33 Holger Glandorf og Arnar Freyr Arnarsson við undirskriftina. Flensburg Landsliðsmaðurinn Arnar Freyr Arnarsson hefur skrifað undir samning við þýska stórliðið Flensburg og gengur í raðir þess í sumar.
Flensburg tilkynnti um þetta á sama tíma og Arnar er í Egyptalandi að spila með íslenska landsliðinu í vináttulandsleik við heimamenn sem var að ljúka með 31-30 sigri Íslands. Samningur Arnars, sem er þrítugur og kemur frá Melsungen, er til eins árs. Hann verður fimmti Íslendingurinn til að spila fyrir Flensburg og nær því á undan Viggó Kristjánssyni sem kemur til félagsins sumarið 2027. Áður hafa Teitur Örn Einarsson, Ólafur Gústafsson, Arnór Atlason, Einar Hólmgeirsson og Alexander Petersson spilað fyrir félagið. „Það að fara til SG Flensburg-Handewitt er stórt skref fyrir mig og eitthvað sem gerir mig mjög stoltan. Ég hef heyrt svo margt gott um félagið, stuðningsmennina og andrúmsloftið í kringum liðið. Ég get ekki beðið eftir því að byrja og hjálpa liðinu að ná árangri,“ er haft eftir Arnari á heimasíðu Flensburgar. View this post on Instagram A post shared by SG Flensburg-Handewitt (@sgflensburghandewitt) q Holger Glandorf, framkvæmdastjóri Flensburgar, og þjálfarinn Ales Pajovic fagna komu Arnars. „Það var mikilvægt fyrir okkur að semja við línumann sem hefur þegar reynslu úr Bundesligunni. Álagið yfir allt tímabilið er gríðarlegt og við vildum skapa tækifæri til að gefa Blaga og Emil nauðsynlega hvíld án þess að tapa gæðum. Arnar hefur nákvæmlega þann prófíl sem við vorum að leita að – líkamlega sterkur, reyndur og með frábæran liðsanda,“ sagði Glandorf. „Arnar er leikmaður sem verður mjög verðmætur fyrir liðið okkar, bæði í sókn og vörn. Hann leggur gríðarlega hart að sér fyrir liðið sitt, hefur reynslu úr Bundesligunni og mun veita okkur meiri sveigjanleika í línumannsstöðunni. Sérstaklega á löngu tímabili er mikilvægt að geta dreift álaginu á fleiri leikmenn,“ sagði Pajovic.
Þýski handboltinn Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira