Skólastarf til fyrirmyndar 15. maí 2026 15:31 Málefni leik-, grunn- og framhaldsskóla eru okkur í D-lista og annarra lýðræðissinna í Rangárþingi eystra hugleikin. Með öflugu, framsæknu og faglegu starfi á öllum skólastigum leggjum við sterkan grunn að framtíð barnanna okkar. Þar er auðvitað lykilatriði að huga vel að starfsumhverfi kennarra og annarra starfsmanna til að auðvelda þeim að takast á við það verkefni að kenna og leiðbeina þeim sem erfa munu landið. Öll börn frá 12 mánaða aldri hafa fengið tryggt pláss í nýjum og glæsilegum leikskóla sem tekinn var í notkun á síðasta kjörtímabili, nánar tiltekið í ágúst 2023. Reistur var glæsilegur leikskóli þar sem allir hlutaðeigandi komu að borðinu við hönnun. Til gamans má nefna að þá var það leikskólinn okkar Aldan sem hlaut hljóðvistarverðlaunin þegar þau voru veitt í annað sinn í úttekt á leikskólum landsins. Nýr leikskóli verður samt ekki alltaf nýr og huga þarf vel að því að halda við húsnæðinu og umhverfi þess svo sómi sé að. Ekki er síður mikilvægt að huga að því að tvítyngi barna er hátt og einnig hlutfall erlendra barna sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Þá viljum við styðja við fjölskyldur barna í leikskóla og innleiða gjaldfrjálsan leikskóla í skrefum. Fyrsta skrefið yrði að koma á gjaldfrjálsum máltíðum líkt og innleitt hefur verið í grunnskóla. Einnig viljum við endurskoða styrki til aksturs leikskólabarna er búa í dreifbýli með það að markmiði að það nýtist fleirum. Nú er svo komið að grunnskólinn okkar er að verða of lítill því börnum fjölgar hratt og ört í sveitarfélaginu. Nýjustu spár um húsnæðisþörf grunnskólans gerðu ráð fyrir að huga þyrfti að stækkun skólahúsnæðis í kringum 2032 en nú er svo komið að drífa þarf það verkefni í gang. Í lok liðins kjörtímabils var ákveðið að hefjast handa við undirbúning að viðbyggingu við Hvolsskóla. Í þessari framkvæmd munum við vilja gera eins og við leikskólann og fá alla hlutaðeigandi að borðinu við hönnun húsnæðisins. Það er ávallt gaman að heyra jákvæðar frásagnir af skólastarfinu. Krakkar á öllum aldri fá hrós alls staðar að fyrir góða framkomu og hvað þau eru almennt frábær, þar leikur frábært starfsfólk innan skólans stórt hlutverk því ef kennarar og leiðbeinendur sýna ekki áhuga þá er erfitt að ætla börnunum það. Öll viljum við verða eitthvað þegar við verðum stór og þá er mikilvægt að nemendur eigi góðan kost á að sækja sér nám á eigin forsendum, framhaldsskólinn er þannig ekki síður mikilvægur samfélaginu okkar. Mikilvægt er að þrýsta á að almenningssamgöngur verði alvöru valkostur fyrir nemendur til að sækja skóla. Einnig þarf að leggja þunga áherslu á að byggja upp örugga og góða heimavist fyrir FSU sem að ungmenni vilja raunverulega nýta sér. Góð skólaþjónusta þarf að vera til staðar og taka utan um öll okkar börn, líka þau sem þurfa aukin stuðning hvort sem er í námi eða tómstund og við viljum gæta þess. Í samfélagi eins og okkar þar sem erlendir íbúar eru margir er auk þess mikilvægt að við aukum framboð og aðgengi á íslenskukennslu fyrir þá sem það kjósa sér. Síðast en ekki síst, þar sem vorið er komið og sumarið farið á banka á dyrnar á milli kuldadaga, þá viljum við efla starfsemi vinnuskólans og opna fyrir umsóknir frá ungmennum utan sveitarfélagsins sem vilja mögulega koma og verja sumarfríi hjá ættingjum og vinum þannig þau eiga líka möguleika á að sækja sér atvinnu í leiðinni. Kæru íbúar við viljum standa vörð um börnin okkar á hvaða aldri sem þau eru. Ég hvet þig til að setja X við D þann 16. maí. Höfundur skipar 5.sæti D-lista og annarra lýðræðissinna í Rangárþingi eystra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Leikskólar Sjálfstæðisflokkurinn Rangárþing eystra Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar