Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Freyja Þórisdóttir skrifar 15. maí 2026 20:52 Barmahlíð er hjúkrunar- og dvalarheimili á Vestfjörðum. Vísir/Vilhelm Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum hefur verið ákærð fyrir að hafa tekið debetkort af vistmanni og greitt fyrir vörur og þjónustu að andvirði ríflega 1,2 milljóna íslenskra króna. Þannig er henni gert að hafa misnotað stöðu sína en vistmaðurinn er í dómnum sagður vera með vitræna skerðingu, vangetu til þess að átta sigá fjármálum og háður ákærðu um þjónustu.
Málið var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Vestfjörðum í febrúar síðastliðnum en konan starfaði sem ummönnunaraðili á hjúkrunar- og dvalarheimilinu. Hefur hún játað að hafa þegið debetkortið og notað það í eigin þágu fjörutíu og átta sinnum. Tók hún meðal annars út pening í hraðbanka, keypti sér pítsu, fór í sund og verslaði í húsgagnavöruversluninni IKEA. Alls var rúm milljón og tvö hundruð þúsund tekin af bankareikningi mannsins en svo virðist sem konan hafi tekið kortið með sér erlendis. Var stærsta eingreiðslan af kortinu stíluð á sólgleraugnaverslun í Portúgal, en hún hljóðaði upp á ríflega hundrað og sextíu þúsund krónur. Nýtti sér aðstöðu sína á kostnað mannsins Vistmaðurinn hefur verið sviptur fjárræði en lögmaður hans fer fram á að konunni verði gert að greiða brotaþola skaðabætur að fjárhæð 1.199.766 krónur auk vaxta. Einnig er farið fram á að sú ákærða greiði málskostnað brotaþola. Líkt og fyrr segir hefur konan játað brot sitt skýlaust og er í dómnum greint frá því að brotið sé tvíhliða þar sem „ákærða hafi einhliða misnotað sér aðstöðu sína og trúnað til þess að afla sér fjárvinnings á kostnað brotaþola“. Með tilliti til játningar ákærðu og viðurkenningar á bótaskyldu gagnvart brotaþola hefur konan verið dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og henni gert að greiða brotaþola rétt tæpa eina og hálfa milljón sem og þóknun skipaðs verjanda síns sem er um tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur.
Lögreglumál Dómsmál Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjum Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Hnífjafnt til hægri og vinstri Innlent Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Innlent Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Innlent „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Innlent Fleiri fréttir Þarf ekki mikið til svo það verði hreyfingar í Reykjavík „Auðvitað, við erum langbesti flokkurinn“ „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Sjálfstæðismenn á flugi Framinn þjófnaður á fjórum stöðum í dag Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Gæsluvarðhald fósturföðurins framlengt um tvær vikur Skálmöld hafði betur fyrir dómi Útstrikanir gætu haft áhrif en þær virka svona „Samfylkingin í Reykjavík er kvennagildra“ Kosning um sameiningu sveitarfélaganna ógild „Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi“ Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Selalaug og tilmæli um barnaafmæli gæluverkefni sem mætti slaufa Sigfríð Ingólfsdóttir er látin Ragna Bjarnadóttir nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar Landlæknir braut á deildarstjóra réttargeðdeildar Vara við fölsuðu Xanax í dreifingu „Auðvitað með ólíkindum að þetta fái að viðgangast“ Um þrjátíu þúsund kosið utankjörfundar Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Framboðin missi mögulega af leiðinni að hjarta kjósenda Hnífjafnt til hægri og vinstri Útboði lokið og ný líkbrennsla tekin í notkun við lok 2027 Hvernig meirihluta vilja borgarbúar sjá? Arndís Anna til Bifrastar Allt sem þú þarft að vita um kosningarnar Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjum Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Sjá meira