Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Jakob Bjarnar skrifar 17. maí 2026 08:59 Berin eru súr sagði refurinn. Stefán Pálsson sér fram á enn eitt kjörtímabilið á bekknum meðan Sjálfstæðismenn fagna, hömlulaust. vísir/vilhelm Stefán Pálsson, sem er þriðji maður á lista Vinstrisins í Reykjavík, sér fram á annað kjörtímabil á bekknum – sér til nokkurrar hrellingar. Framboðið náði tveimur mönnum inn í Reykjavík sem eru þá Sanna Magdalena Mörtudóttir og Líf Magneudóttir. Stefán sleikir sárin. Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor telur að afskipti Kristrúnar Frostadóttur hafi verið mistök.
Sjálfstæðisflokkurinn vann stórsigur víða um land og ekki síst í borginni þar sem hann náði níu mönnum inn í borgarstjórn. Engin skoðanakönnun gaf til kynna að annað eins og þetta væri í vændum. Stefán Pálsson frambjóðandi hjá Vinstrinu var ekki mjög hress með þessa niðurstöðu og lætur það í ljós á Facebook-síðu sinni. Berin eru súr sagði refurinn „Jæja, svona fór um sjóferð þá,“ segir Stefán. Hann segir að landsmenn hafi í kvöld og í nótt horft upp á mikla hægrisveiflu í kosningunum á landsvísu. Sjálfstæðisflokkur sé yfirburðasigurvegari kosninganna og bæði Framsókn og Miðflokkur megi vel við una. Stefán Pálsson sér fyrir sér annað kjörtímabil á bekknum.vísir/vilhelm Stefán var varaborgarfulltrúi Vinstri grænna á síðasta kjörtímabili. Vinstrið er sameiginlegt framboð Vinstri grænna auk Sönnu Magdalenu Mörtudóttur sem klauf sig út úr Sósíalistaflokknum skömmu fyrir kosningar. Og þar finnur Stefán huggun harmi gegn: „Við í Vinstrinu í Reykjavík vildum gera betur, en getum þó huggað okkur við að miðað við landssveifluna stóð róttæka vinstrið sig vel. Sameiginlegt fylgi Vinstrisins og Sósíalistaflokksins er öllu meira en hjá VG og Sósíalistaflokki síðast – en Samfylking og aðrir flokkar vinstra megin við miðju ýmist lækkuðu eða guldu afhroð.“ Stefán segir að nú sé að sleikja sárin og byggja sig upp hratt og örugglega. Og hann veltir fyrir sér hvaða áhrif kosninganiðurstöðurnar munu hafa á landsmálin: „Mig grunar að úrslitin nú ýti undir að styttist í næstu Alþingiskosningar.“ Afskipti Kristrúnar mistök Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor í Bandaríkjunum og bróðir Dags B. Eggertssonar telur þetta reyndar sérkennilega ályktun að draga hjá Stefáni. Kjósendur leiti almennt jafnvægis. „Lögmálið í Bandaríkjunum er að þegar forsetinn er í einum flokki, hallast þingið á hinn. Kjósendur vilja „balance“. Hér virtist forsætisráðherra vera í framboði í öllum kjördæmum. Það var dæmt til að enda í lestarslysi, hvort sem það væri strategían hér á Íslandi eða annars staðar. Í raun var það þannig sem R-listinn vann,“ segir Gauti. Í sjónvarpsviðræðum þegar úrslitin lágu að einhverju leyti fyrir. Ari Edwald leiðtogi Miðflokksins er annar sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna, Kristinn Jón Ólafsson, Pírötum, síður. Þá kemur Pétur Marteinsson sem leiddi haltur Samfylkinguna og þá Hildur Björnsdóttir leiðtogi Sjálfstæðismanna í borginni. Á milli Kristins og Péturs er laust pláss ætlað Sigfúsi Aðalsteinssyni oddvita Okkar borgar, en hann átti bókaða flugferð og gat því ekki verið viðstaddur.vísir/vilhelm Gauti telur afskipti Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar af kosningunum nú hafa verið mistök. Hann bendir á að þegar Davíð Oddsson varð forsætisráðherra og fór beint í þann stól úr borgarstjórastólnum hafi fólki greinilega þótt mikið að gefa Sjálfstæðisflokknum bæði borgina og ríkisstjórn. Þannig unnu vinstrimenn borgina. „Samflokksmenn í meirihluta í ríkisstjórn eiga að einbeita sér að því að þegja í sveitarstjórnarkosningum. Viðreisn gerði það vel. Samfylkingin fór í hina áttina,“ segir Gauti.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Vinstrið Sjálfstæðisflokkurinn Samfélagsmiðlar Samfylkingin Sósíalistaflokkurinn Borgarstjórn Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira