Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Lovísa Arnardóttir skrifar 18. maí 2026 10:01 Sveitarstjórnarfulltrúar Byggðalistans. Eyþór Fannar, Jóhanna og Sveinn. Aðsend Byggðalistinn og Sjálfstæðisflokkur hafa hafið óformlegar meirihlutaviðræður í Skagafirði. Verði af því samstarfi lýkur um tuttugu ára samfelldri sögu Framsóknarflokksins í meirihluta í sveitarfélaginu.
Byggðalistinn bætti við sig fulltrúa í sveitarstjórn Skagafjarðar en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hélt velli en Framsókn tapaði þó fulltrúa og Sjálfstæðisflokkur bætti við sig. Eyþór Fannar Sveinsson, oddviti Byggðalistans í Skagafirði, segir engar formlegar viðræður hafnar á milli Byggðalistans og Sjálfstæðisflokksins en staðfestir að óformleg samtöl hafi átt sér stað. Nái þau að mynda meirihluta verður um tuttugu ára meirihlutaseta Framsóknarflokksins í sveitarfélaginu rofin. „Við erum ekki hafin formlega en það eru óformlegar viðræður hafnar. Við erum búin að heyrast á milli og taka stöðuna á ákveðnum málum. Það er alveg rétt hjá Einari að við erum að ræða saman,“ segir Eyþór í samtali við fréttastofu og vísar þá í frétt Feykis í gær við oddvita Framsóknarflokksins, Einar Eðvald Einarsson, sem sagði Sjálfstæðisflokkinn ætla að rifta tólf ára meirihlutasamstarfi flokkanna. Atkvæðin dreifðust þannig í Skagafirði: B-listi - Framsóknarflokkurinn: 22,9% með 2 fulltrúa D-listi – Sjálfstæðisflokkurinn: 30,7% með 3 fulltrúa L listi – Byggðalistinn: 33,6% með 3 fulltrúa M-listi - Miðflokkurinn: 12,8% með 1 fulltrúa Á vef Feykis kemur fram að Sjálfstæðismenn ætli, eftir tólf ára samstarf, að hefja meirihlutaviðræður við Byggðalistann. Það hefur Feykir eftir oddvita Framsóknarflokksins, Einari Eðvald Einarssyni. „Við gætum myndað meirihluta með Framsóknarflokki en við viljum fyrst svara ákalli kosninganna. Við erum að fá ofsalega góða kosningu og eðlilega ættum við að vera fyrst til að hefja viðræður. Sjálfstæðisflokkurinn er að brjóta pínu blað í sögunni með því að skilja Framsóknarflokkinn eftir.“ Spurður um þau málefni sem Byggðalistinn lagði áherslu á og hann telur fólk hafa verið að kjósa segir Eyþór Fannar að listinn hafi lagt áherslu á grunninnviði sem dæmi. „Við lögðum mikla áherslu á grunninnviði. Við erum með fólk sem kemur börnum sínum ekki á leikskóla vegna mönnunarvanda. Það er lengi búið að lofa að byggja íþróttahús í Hofsósi og búið að lofa því og fólk er þreytt á því að það sé ekkert gert í því. Fólk vildi breytingar,“ segir hann. „Við höfum reynt að vera heiðarleg í þessum málum og okkur hefur fundist í samtölum við fólk að orðræða meirihlutans, að það sé allt í blóma, hafi ekki verið að heilla, fólk finnur ekki fyrir því,“ segir Eyþór. Kjósa það sama Hann segir Skagafjörð íhaldssamt samfélag að því leytinu til að fólk hefur yfirleitt kosið það sama og niðurstöður kosninga síðustu tuttugu ára sýni það. „Við erum í samfélagi sem er mjög íhaldssamt, sem heldur sig í því sama, og það er ástæðan fyrir því að Framsókn hefur verið svona sterk. Það hjálpar kannski líka að við erum óháð framboð,“ segir hann og að eflaust hafi það haft áhrif líka að enginn ríkisstjórnarflokkanna hafi boðið fram í sveitarfélaginu. Kjörnir fulltrúar í Skagafirði. Vísir Framsóknarflokkurinn hefur verið í meirihluta með Sjálfstæðisflokki frá því í kosningum 2014 en fyrir það var Framsóknarflokkurinn í meirihlutasamstarfi með Vinstri grænum 2010 til 2014 og Samfylkingunni 2006 til 2010. Framsóknarflokkurinn hefur því verið í meirihluta allt frá árinu 2006. Fyrir það voru Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn í meirihlutasamstarfi 2002 til 2006 en Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur í meirihlutasamstarfi 1998 til 2002. Sigfús Ingi Sigfússon hefur gegnt embætti sveitarstjóra frá árinu 2018. Eyþór Fannar segir það stefnu Byggðalistans að öll embætti og störf sveitarfélagsins verði auglýst. Hann segir Sjálfstæðisflokkinn með aðra sýn á þetta málefni og telur að þetta gæti orðið „eitt af erfiðu málunum“ í meirihlutaviðræðum. „Okkar stefna hefur alltaf verið að auglýsa sveitarstjórastarfið og ég veit fyrir víst að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðnar hugmyndir um sveitarstjóra og þegar tveir flokkar reyna að mynda meirihluta þarf að ræða ákveðin mál og þetta er eitt af þeim,“ segir hann og að hann sé vel meðvitaður um að Byggðalistinn þyrfti að geta réttlætt það ansi vel yrði þetta gefið eftir í meirihlutaviðræðum.
Skagafjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira