Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Sindri Sverrisson skrifar 22. maí 2026 07:31 Dagur Sigurðsson hefur verið landsliðsþjálfari Króatíu frá því í febrúar 2024. Getty/Sanjin Strukic Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu, er einn af þremur sem orðaðir eru við starf þjálfara þýska handboltaliðsins Flensburg. Ýmislegt þyrfti þó að gerast áður en að því gæti orðið.
Slóveninn Ales Pajovic er þjálfari Flensburg og með samning sem gildir í eitt ár til viðbótar. Þýski miðillinn Sport Bild segir að nú gæti hins vegar þjálfarakapall verið að fara í gang og staðan hjá Flensburg losnað. Pólska stórveldið Kielce er nefnilega í leit að þjálfara eftir að Talant Dujshebaev ákvað að hætta og er sagt ætla sér að fá Uros Zorman, þjálfara slóvenska landsliðsins og RD Slovan í Slóveníu. Slovan horfir því að sama skapi til þess að fá Pajovic heim til Slóveníu til að taka við liðinu og með því ætti staða hans að losna. Bild segir jafnframt að umboðsmaðurinn Andrej Golic sé farinn að auglýsa Pajovic á markaðnum, þó að hann eigi eitt ár eftir af samningi sínum við Flensburg. Hafa horft til Íslendinga undanfarið Fari svo að Pajovic yfirgefi Flensburg eru Dagur, Dujshebaev og Misha Kaufmann, þjálfari Stuttgart, sagðir líklegastir til að taka við liðinu. Flensburg hefur verið að horfa til Íslendinga undanfarið og fyrir níu dögum tilkynnti félagið að línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson kæmi í sumar og hefði skrifaði undir samning til eins árs. Í byrjun apríl tilkynnti félagið svo að samið hefði verið við Viggó Kristjánsson um að koma sumarið 2027, þó að mögulega gerist það fyrr.
Þýski handboltinn Handbolti Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Fleiri fréttir Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ „Meira en tvö stig undir“ Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Sjá meira