Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sindri Sverrisson skrifar 24. maí 2026 13:18 Gísli Þorgeir Kristjánsson fagnar í sigrinum gegn Flensburg á fimmtudaginn sem tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn. Getty/Jan Woitas Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson eru þegar búnir að tryggja sér þýska meistaratitilinn í handbolta, fyrir leikinn við Rhein-Neckar Löwen í dag í þriðju síðustu umferðinni.
Gísli, sem nú hefur orðið Þýskalandsmeistari fjórum sinnum, enn 26 ára gamall, var á meðal leikmanna sem þýski miðillinn Bild spurði hvaða leikir hefðu gert gæfumuninn í að vinna titilinn í ár. Hann var fljótur að benda á 35-33 sigurinn gegn meisturum síðasta árs, Füchse Berlín. „Þegar maður talar um stóra leiki, þá var Berlínarleikurinn hérna heima mjög mikilvægur. Þegar maður sér hvar öll hin liðin tapa stigum, þá komumst við bara mjög vel í gegnum þetta og töpuðum aðeins fjórum stigum í heildina. Þetta eru leikirnir sem maður verður að vinna og þar sem meistaratitillinn ræðst,“ sagði Gísli við Bild. Gísli á meistaratitil með Kiel á ferilskránni, frá árinu 2020, en hafði þá lítið spilað með liðinu vegna meiðsla og skipt til Magdeburgar í janúar. Núna hefur hann verið í aðalhlutverki í þremur meistaratitlum með Magdeburg en einn þeirra stendur upp úr, sá fyrsti sem jafnframt kom eftir svo langa og erfiða baráttu við meiðsli. „Fyrsti meistaratitillinn 2022 verður alltaf minn persónulegi númer eitt! Þessi núna kemur fast á hæla honum, en allir titlar eru geggjaðir!“ sagði Gísli við Bild. Gísli og félagar geta svo bætt Evrópumeistaratitli við í júní því þeir eru komnir í undanúrslit Meistaradeildarinnar og mæta þar Füchse Berlín 13. júní áður en úrslitaleikurinn fer fram degi síðar, í Köln. Gísli var valinn verðmætasti leikmaður Meistaradeildarinnar þegar hann vann keppnina bæði í fyrra og árið 2023.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira