Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 26. maí 2026 12:01 Erna Bergmann er viðmælandi Kára Sverris í þáttunum Litlu hlutirnir. Kári Sverris „Litli strákurinn minn sem er sex ára í dag var bara eins árs þegar þetta átti sér stað. Það var svo skrýtið að vera með nýtt líf í höndunum, vera bara með hann á brjósti og svo að vita ekki hvort þú sért að fara að lifa,“ segir hönnuðurinn, jógakennarinn og lífskúnstnerinn Erna Bergmann. Erna er eigandi sundfatamerkisins og heilsustúdíósins Swimslow og breytti algjörlega um stefnu í lífinu eftir að hún greindist með krabbamein.
Erna er viðmælandi Kára Sverris í þáttunum Litlu hlutirnir sem má sjá í spilara hér að neðan: Óánægð með sjálfa sig og forðaðist sund Erna Bergmann er fædd árið 1983 og er lærður fatahönnuður. Hún hefur rekið sundfatamerkið Swimslow í tæpan áratug og stækkaði verkefnið þegar hún opnaði Swimslow Studio í miðbænum. Er um að ræða heilsustúdíó með ýmsum jóga-og pílates tímum samhliða fræðslukvöldum og alls kyns meðferðum. „Það er svo gaman með lífið hvernig allt þróast og allt er eins og það á að vera. Hjá mér er allt búið að samtvinnast svo fallega í þennan heim.“ Erna var lengi vel að vinna sem stílísti í fjölbreyttum verkefnum samhliða því að gefa út tískutímarit. Hún er með meistaragráðu í hönnun og á meðan hún var í náminu kom hugmyndin að Swimslow til hennar, í Vesturbæjarlauginni. „Ég var ekki mikið fyrir það að fara í sund í mörg ár, ekki fyrr en ég varð 25 ára. Það var eiginlega bara af því ég var svo óánægð með sjálfa mig. Svo með þroska og áhrifum vatnsins þá gat ég ekki látið það vera,“ segir Erna kímin. Vissi ekki hvort hún myndi lifa Erna fór í jógakennaranám eftir að hún eignaðist dóttur sína fyrir tólf árum og hefur allar götur síðan stundað mikið jóga og jóga nidra, sem er jógískur svefn þar sem iðkendur liggja og slaka á. Jógað hefur verið mikið haldreypi í lífi Ernu.Stikla „Nokkrum árum seinna fæ ég krabbamein. Það var svo ómetanlegt í gegnum það ferli að vera með öll þessi tól. Ég var búin að vera að hugleiða og bara það að kunna þetta allt og vera með öndunina. Þú átt alltaf andardráttinn oig hann getur hjálpað þér svo mikið. Það sem hjálpaði mér í gegnum allt þetta ferli var öndun og hugleiðsla og þetta að geta tengst sjálfri mér. Litli strákurinn minn sem er sex ára i dag hann var bara eins árs þegar þetta átti sér stað. Það var svo skrýtið að vera með nýtt líf í höndunum, vera bara með hann á brjósti og svo að vita ekki hvort þú sért að fara að lifa. Þá eru þetta ótrúleg tól, þau komu mér í gegnum þetta. Við höfðum farið í gegnum krabbamein með öðrum fjölskyldumeðlimum og þurft að kveðja þá þannig dauðinn var svo nálægt sko.“ Í kjölfarið breyttist sýn Ernu á lífið og ferilinn, elti ástríðuna og fór að einblína á það hæga, bæði í daglegu lífi og sömuleiðis hæga og vistvæna tísku í sundfatahönnuninni. „Í gegnum allt þetta ferli breytti ég svolítið lífinu. Þetta að hægja á mér, það var allt komið til mín.“
Litlu hlutirnir Krabbamein Tíska og hönnun Heilsa Mest lesið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Fleiri fréttir Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Sjá meira