Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Þórarinn Þórarinsson skrifar 29. maí 2026 07:00 Edda Borg og Róbert Þórhallsson, skólastjóri FÍH, fundu slíkan samhljóm með tónlistarskólunum tveimur að þeir verða sameinaðir í einn öflugasta tónlistarskóla landsins þegar rytmísk tónlist er annars vegar. Myndir/Aðsendar „Við sjáum bara fram á að við verðum einn öflugasti tónlistarskólinn á landinu þegar rytmísk tónlist er annars vegar,“ segir Edda Borg Ólafsdóttir um sameiningu Tónskóla hennar og Tónlistarskóla FÍH.
Edda Borg og Róbert Þórhallsson, skólastjóri FÍH, undirrituðu í gær samning um sameiningu þessara tveggja rótgrónu tónlistarskóla í Reykjavík og segjast bæði sjá fram á mikil og góð samlegðaráhrif sem muni ekki síst koma nemendum til góða.Nemendur muni þó að öðru leyti lítið finna fyrir sameiningunni því áfram verður kennt, eins og ekkert hafi í skorist, á báðum stöðum. Annars vegar hjá henni í Kleifarselinu og hins vegar hjá FÍH í Rauðagerði. „Við sjáum bara mikla hagræðingu í þessu og fullt af spennandi og skemmtilegum hlutum sem við getum gert saman,“ segir Edda Borg.„Róbert kemur til með að vera skólastjóri yfir öllu og ég verð aðstoðarskólastjóri og við sjáum einmitt fyrir okkur að þetta verði bara betra fyrir báðar starfsstöðvarnar, ef svo má að orði komast. Edda Borg og maðurinn hennar, Bjarni Sveinbjörnsson,sem hefur staðið þétt við hlið hennar í Tónskólanum frá upphafi. Þá kenndi hann Róberti, skólastjóra Tónlistarskóla FÍH, á bassa þar á sínum tíma og því óhætt að segja að þessi þrjú kunni að loka hring með taktvissum stæl.Mynd/Tónskóli Eddu Borg FÍH hefur fram að þessu verið meira með eldri nemendur en við höfum nánast alla tíð bara verið með nemendur á grunnskólastigi og þegar þeim hefur miðað áfram í náminu höfum við sent þau áfram og þá mjög oft niður í FÍH. Þetta rímar því alveg rosalega vel saman og við sjáum þarna bara meiri samfellu frá forskóla og upp á framhaldsstig.“ Öflugur rytmi Báðir eiga skólarnir sér langa sögu. Edda Borg stofnaði Tónskóla sinn haustið 1989 og Tónlistarskóli FÍH tók formlega til starfa þann 19. september 1980.„Ég var að slíta mínum skóla í 37. skiptið í gær og FÍH verður 50 ára eftir fjögur ár og við Bjarni, sem er búinn að vera mín hægri hönd í þessum skóla alla tíð, verðum hérna áfram,“ segir Edda um eiginmann sinn, Bjarna Sveinbjörnsson, sem hefur verið hennar hægri hönd í skólanum alla tíð. „Þannig að það er í rauninni engin breyting á þessu hérna og þeir nemendur sem hafa verið hjá okkur munu ekki sjá eða finna neinn mun annan en aukið námsframboð og meiri fjölbreytni. Það eru sömu kennarar og allt slíkt en við sjáum bara fram á að við verðum einn öflugasti tónlistarskólinn á landinu þegar rytmísk tónlist er annars vegar.“ Edda bendir á að þótt hún sé sjálf tónmenntakennari og hafi lært klassískan píanóleik fram eftir öllu þá komi þau hjónin bæði úr rytmíska geiranum. „Við erum náttúrulega búin að vera í poppmúsík, djassi og rokki og svona dóti og við komum með þann styrkleika inn í þennan skóla og þannig rímar það svo vel við FÍH.“ Strengir mynda hring „Við höfum náttúrlega verið með svona ákveðið óformlegt samstarf í gegnum árin þannig að nemendum sem hafa farið í gegnum grunnpróf hjá Eddu hefur mjög oft verið beint hingað,“ segir Róbert og bendir á að víða liggi strengir.„Af því að bæði Edda og Bjarni Sveinbjörns voru kennarar við þennan skóla og Bjarni kenndi mér meðal annars á bassa þegar ég byrjaði hérna, þannig að hringurinn er að lokast.“Róbert segir að hugmyndin að baki þessum sögulega samruna hafi í raun verið að byggja upp sterkt nám alveg frá forskóla og upp að framhaldsnámi og að slíkan skóla hafi í raun vantað.„Það er mikið af skólum sem kenna á yngstu stigunum og síðan eftir að MÍT tók svona einhvern veginn við menntaskólaaldrinum þá hvarf svolítið möguleiki ákveðins aldurs á því að halda áfram og það myndaðist pínu rof,“ segir Róbert með vísan til þess að hugur tónelskra unglinga leiti í ýmsar áttir þannig að vitaskuld henti ekki öllum að fara í MH og MÍT. „Þannig að ég er búinn að ræða við borgina í nokkur ár um að þetta gat væri að myndast,“ segir hann og bendir á að þegar Edda hafi sýnt því áhuga að koma sínum skóla í ákveðið var hjá FÍH hafi þessi möguleiki orðið til.„Af því að þau eru að vinna frábært starf þarna upp frá og ég lít svo á að við séum að gera það líka þannig að ég tel að við séum bara á leiðinni að stofna mjög sterkan skóla með áherslu á rytmík.“ Sameinast um öruggt umhverfi Róbert segir þau einnig hafa hug á því að samþætta tónfræðikennslu með einhverju móti þannig að forskólakrökkum verði kennt á sama hátt og þegar þau fara í gegnum efri stigin. „Þannig að við erum að búa til svona ákveðið öryggi og öruggt umhverfi fyrir þau til þess að læra í. Tónskóli Eddu Borg er í rauninni að koma undir Tónlistarskóla FÍH, þannig að mín starfsstöð kemur til með að heita bara Tónlistarskóli FÍH og starfsstöðin í Breiðholti Tónlistarskóli FÍH-Edda Borg,“ segir Róbert. „Við höfum verið það lítill skóli að við höfum ekki getað haldið úti öllum aukagreinunum og öllu því sem þarf til þess að sinna börnunum almennilega. Þess vegna sendum við þau frá okkur en núna munum við ekki þurfa þess,“ bætir Edda við.„Þetta er mjög spennandi,“ segir Edda sem kynnti breytinguna á skólaslitunum í gær þar sem hún segist hafa fundið áþreifanlega fyrir eftirvæntingunni sem tíðindin vöktu. „Það fór svona hviða um salinn og það voru rosalega margir sem komu til mín á eftir og óskuðu mér til hamingju og fannst þetta vera mjög spennandi skref sem við vorum að taka.“
Tónlistarnám Reykjavík Tónlist Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Sjá meira