Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. maí 2026 15:32 Bruno Fernandes á stoðsendingamet ensku úrvalsdeildarinnar. Steve Bardens/Getty Images Bruno Fernandes gaf sína 21. stoðsendingu á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni um helgina, stoðsendingin var umdeild en hún hefur nú verið staðfest af dómnefnd.
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út meðal stuðningsmanna Manchester United þegar Fernandes sveiflaði boltanum fyrir á Patrick Dorgu og United tók forystuna gegn Brighton, í leik sem átti eftir að enda með 0-3 sigri. Þetta var 21. stoðsending Fernandes á tímabilinu og hann tók þar með stoðsendingametið af Thierry Henry og Kevin De Bruyne, sem gáfu 20 stoðsendingar á einu tímabili. Efasemdarraddir heyrðust þó fljótlega eftir markið, því í endursýningu má sjá að skalli Dorgu fer í slána. Þaðan skoppaði boltinn í markmanninn og svo yfir línuna. Einhverjir vildu þá meina að markið ætti að skrást sem sjálfsmark markmannsins Bart Verbruggen, og þá yrði stoðsendingin sjálfkrafa tekin af Fernandes. Þriggja manna dómnefnd ensku úrvalsdeildarinnar, eða Premier League Goal Accreditation Panel,úrskurðaði hins vegar að markið yrði skráð á Dorgu og stoðsendingin þar af leiðandi á Fernandes. Stoðsendingu Bruno Fernandes og mörkin úr leik Manchester United gegn Brighton má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Minden keypti Erling af ÍBV Handbolti Fleiri fréttir Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjá meira