„Þetta vita Einar og Björg“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. maí 2026 14:54 Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Vísir/Lýður Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segist óttast að fyrirætlanir nýs meirihluta um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins muni fela í sér miklar tafir á framkvæmdum og viðhalda umferðarhnútum í borginni til næstu ára. Hann segist ekki sjá handbragð Viðreisnar í meirihlutasáttmálanum og furðar sig á því að Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar vilji nú endurskoða samgöngusáttmála sem hann hafi skrifað undir fyrir átján mánuðum síðan. „
Mín fyrstu viðbrögð eru að sjálfsögðu þau að ég óska verðandi borgarstjóra og nýjum meirihluta til hamingju. Ég, og við í Samfylkingunni hlökkum til að veita þeim aðhald og styðja við góð mál,“ segir Pétur í samtali við Vísi. Líkt og fram hefur komið kynntu oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar nýtt meirihlutasamstarf í Reykjavík í Viðey í morgun. Samfylkingin hefur verið í meirihluta síðustu sextán ár og ljóst að um mikil tímamót er að ræða. „Það fyrsta sem slær mig hinsvegar varðandi samstarfið eru yfirlýsingar þeirra um endurskoðun samgöngusáttmálans. Einar Þorsteinsson skrifaði sjálfur undir þennan sáttmála fyrir átján mánuðum síðan. Það er ábyrgðarhluti að rífa upp samkomulag sem öll sveitarfélög eru sammála um og ríkisstjórnin líka á tveggja ára fresti. Þetta mun bara tefja framkvæmdir og tryggja að umferðin verði verri í lengri tíma. Við erum farin á fleygiferð í uppbyggingu og ég óttast hvað þetta mun gera.“ Pétur segir mikilvægt að haldið sé við samninginn. Ekki megi láta undan óskum hvers og eins sem vilji gera breytingar á samkomulaginu, það verði einungis til þess að tefja framkvæmdir. „Þetta vita Einar og Björg. Það litla sem maður hefur séð núna frá verðandi meirihluta virðist vera frá Sjálfstæðisflokknum. Það er ekkert handbragð Viðreisnar á meirihlutasáttmálanum og ég efast um að þar sé eitthvað að finna frá Framsókn. Þetta kemur svo bara allt í ljós og ég hlakka til að sjá þau sýna á spilin.“ Hann segir Samfylkingu munu setja spurningamerki við fleiri mál meirihlutans. „Þá sérstaklega mál sem varða jöfnuð í borginni. Síðan eru þarna önnur góð mál en við munum veita þeim aðhald þetta kjörtímabil með bros á vör.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Borgarstjórn Samgöngumál Tengdar fréttir Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Samkvæmt samstarfssáttmála Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ætla flokkarnir að svara ákalli borgarbúa eftir breytingum í Reykjavík. 27. maí 2026 11:09 „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki. 27. maí 2026 12:03 Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu. 27. maí 2026 12:14 Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Sjá meira
Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Samkvæmt samstarfssáttmála Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ætla flokkarnir að svara ákalli borgarbúa eftir breytingum í Reykjavík. 27. maí 2026 11:09
„Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, telur nýjan borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ekki vera í samræmi við úrslit nýafstaðinna kosninga. Það séu í raun svik við úrslit kosninganna að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki alvarlega íhugað samstarf með Miðflokki. 27. maí 2026 12:03
Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu. 27. maí 2026 12:14