Körfubolti

Hjalti stýrir Skaga­mönnum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Hjalti Þór er tekinn við þjálfarastarfinu hjá ÍA.
Hjalti Þór er tekinn við þjálfarastarfinu hjá ÍA.

Hjalti Þór Vilhjálmsson hefur verið ráðinn til starfa sem þjálfari karlaliðs ÍA í körfubolta og mun stýra liðinu í 1. deildinni á næsta tímabili.

Hjalti er reynslumikill þjálfari sem hefur meðal annars þjálfað hjá Keflavík, Val, KR og nú síðast Álftanesi.

Hann var aðstoðarþjálfari Álftaness fyrri hluta síðasta tímabils en tók við starfi aðalþjálfara þegar Kjartan Atli Kjartansson hætti. 

Kjartan Atli og Hjalti Þór voru þjálfarar Álftaness á síðasta tímabili. Vísir/Anton Brink

Álftanes náði ekki inn í úrslitakeppnina undir stjórn Hjalta og Baldur Þór Ragnarsson var nýlega ráðinn aðalþjálfari liðsins. 

ÍA spilaði undir stjórn Óskars Þórs Þorsteinssonar í Bónus deildinni á síðasta tímabili en nýliðarnir féllu aftur niður í 1. deild ásamt Þór Þorlákshöfn. 

„Með ráðningu Hjalta stefnir ÍA að því að efla enn frekar metnaðarfullt starf sitt innan félagsins og byggja upp öflugt lið til framtíðar. Félagið bindur miklar vonir við samstarfið og hlakkar til komandi verkefna undir stjórn Hjalta,“ segir í tilkynningu ÍA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×