Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Lovísa Arnardóttir skrifar 30. maí 2026 07:32 Löreglan hafði afskipti af fjölda fólks í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Ívar Fannar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fíkniefnaviðskipti við grunnskóla í vesturhluta borgarinnar í gær. Í dagbók lögreglu kemur fram að lögreglumenn við almennt eftirlit hafi orðið varir við grunsamlega háttsemi við grunnskóla og handtekið einn með bakpoka sem innihélt mikið magn fíkniefna og fjármuna. Hann var vistaður í fangaklefa.
Alls voru átta vistaðir í fangaklefa eftir nóttina en samkvæmt dagbók voru 88 mál skráð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í morgun. Í dagbók kemur fram að nokkuð hafi verið um hávaðakvartanir vegna útskriftarveislna en að þær hafi annars farið friðsamlega fram. Lögreglan hafði einnig afskipti af einstaklingi sem var með ógnandi tilburði við dyraverði í miðbæ Reykjavíkur. Hann var færður á lögreglustöð en svo sleppt. Annar var handtekinn vegna slíkra tilburða og hótana í garð lögreglumanna. Ekki kemur fram í dagbók hvar hann var handtekinn en hann notaði skæri til að skemma nærliggjandi bíla. Áflog við verslunarmiðstöð Þá kemur fram að lögreglunni í Kópavogi hafi verið tilkynnt um bílahitting á bifreiðaplani við verslunarmiðstöð. Hittingurinn hafi farið úr böndum, bílar verið skemmdir og áflog brotist út. Málið er í rannsókn samkvæmt dagbók lögreglu. Ekki kemur fram við hvaða verslunarmiðstöð áflogin urðu en Smáralind er í Kópavogi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti svo umferðareftirliti um allt höfuðborgarsvæðið og stöðvaði fjölda ökumanna vegna gruns um akstur undir áhrifum en einnig vegna nagladekkjanotkunar, vegna hraðaksturs og fyrir að aka án leyfis. Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is.
Lögreglumál Reykjavík Kópavogur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira