Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Samúel Karl Ólason skrifar 2. júní 2026 08:00 Þingvallanefnd segir dómsúrskurð þurfa til að grafa leifar Jónasar Hallgrímssonar upp. Vísir/Vilhelm og Getty/DeAgostini Hópur sem vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar segist vilja eyða óvissunni um bein hans. Þess vegna hafi hópurinn beðið um að fá að grafa beinaleifar hans upp í Þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, taka úr þeim sýni og senda í DNA-greiningu.
Hópurinn segir í yfirlýsingu að allt frá því beinin hafi verið send til Íslands, rúmri öld eftir að Jónas dó, hafi verið uppi efasemdir um að um rétt bein hafi verið að ræða. Sagt var frá því í gærkvöldi að hópurinn hefði nýlega farið fram á uppgröftinn við Þingvallanefnd. Niðurstaðan var sú að nefndinni væri ekki heimilt að leyfa sýnatökuna án dómsúrskurðar. Sjá einnig: Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Í umræddum hópi eru þau Elín Hirst fjölmiðlakona, Páll Valsson ævisöguritari Jónasar, Kári Stefánsson læknir, Kristján Valur Ingólfsson fyrrverandi vígslubiskup, Agnar Helgason líffræðilegur mannfræðingur og Lárus Jónsson og Halldór Hilmisson kvikmyndaframleiðendur hjá Republik. Þau hafa unnið að þessu kvikmyndaverkefni í á annað ár. Jónas Hallgrímsson lést í Kaupmannahöfn þann 26. maí 1845. Hann var þá einungis 37 ára gamall og var jarðaður í Assistens-kirkjugarðinum í Kaupmannahöfn. Árið 1946 voru beinin grafin upp í Kaupmannahöfn undir umsjón Matthíasar Þórðarsonar þjóðminjavarðar og flutt til Íslands. Líkamsleifar Jónasar voru síðan jarðsettar í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum 16. nóvember 1946, á fæðingardegi skáldsins. Í yfirlýsingu frá hópnum segir að allt frá þessum tíma hafi verið uppi efasemdir um að beinin væru í raun Jónasar. „Efasemdir hafa hins vegar verið uppi allt frá þeim tíma um hvort rétt bein hafi verið flutt til Íslands. Hópurinn sem stendur að kvikmyndaverkefninu um Jónas álítur að tími sé til kominn að eyða þessari óvissu og beita vísindalegum aðferðum til að komast að hinu rétta um beinin í þjóðargrafreitnum.“
Þingvellir Kirkjugarðar Jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira