„Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. júní 2026 11:00 Fjölskylda Jóns Magnúsar hefur rekið býli á svæðinu um árabil. Bóndi á Reykjabúi í Mosfellsbæ segir einn mann hafa verið að verki í innbroti á býlið aðfaranótt mánudags, maðurinn hafi borið fugla út sem síðar hafi þurft að aflífa. Hann hafi skilið eftir bréf þar sem hann hafi afsakað gjörðir sínar. Bóndinn segir um mikið áfall að ræða. „
Hann braust inn hér og dýrkaði upp lása og fer inn í öll hús og opnar upp á hlað,“ segir Jón Magnús Jónsson bóndi í samtali við Vísi. Jón Magnús er fæddur á Suður-Reykjum þar sem fjölskylda hans hefur verið í alifuglarækt síðan á fyrri hluta síðustu aldar. Hann segir manninn hafa sést vel á öryggismyndavélum og Jón hafi sjálfur vaknað við aðvaranir í öryggiskerfi þegar maðurinn braust inn um þrjúleytið aðfaranótt mánudags. „Maður á náttúrulega alls ekki von á svona löguðu, maður hefði kannski átt að drífa sig meira og fara sokkalaus í skóna. En maðurinn sést vera inni í húsunum að reyna að reka fugla út og annað slíkt. Það náttúrulega gekk alls ekki, svo sést hann bera fugla út á hlaðið sem flestir hlaupa inn aftur.“ Jón Magnús segir um afar alvarlega aðför að ræða að fuglunum. Strangar sóttvarnarreglur séu í gildi á býlinu, enda um matvælaframleiðslu að ræða. Berist smit í fuglana sé ballið búið. Var hann einn að verki? „Hann var bara einn að verki. Hann skilur svo eftir bréf þar sem hann útskýrir hvernig svona fuglar eigi að hafa það út frá sínum sjónarmiðum, sem hann hefði nú getað komið á framfæri með því að kíkja í heimsókn til okkar. Svo er hann að bera blak af sér vegna þessa atviks út á Kjalarnesi og afsaka það. Við höfum afhent lögreglu öll þessi gögn.“ Jón Magnús segir að sem betur fer hafi hann verið fljótur á staðinn þessa nótt og náð að loka húsunum. Hann hafi hinsvegar þurft að aflífa fuglana sem komnir voru út, af sóttvarnarástæðum. „Því miður þá eru bara mjög strangar reglur í gildi, enda er þetta matvælaframleiðsla. Ég veit ekkert hvar hann var síðast í þessum stígvélum, hann hleypur hér um öll hús og svo er hann bara farinn. En það er augljóst að hann var búinn að stúdera okkur.“ Hann segist taka undir með Geir Gunnari Geirssyni framkvæmdastjóra Stjörnugríss sem segir að um nýjan veruleika sé að ræða hjá matvælaframleiðendum á Íslandi. „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna.“
Matvælaframleiðsla Mosfellsbær Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Fleiri fréttir Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður Sjá meira