Fordæma innbrot í Reykjabú Lovísa Arnardóttir og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 2. júní 2026 15:44 Brotist var inn aðfaranótt mánudags í búið sem er staðsett í Mosfellsbæ. Vísir/Vilhelm Samtök fyrirtækja í landbúnaði fordæma harðlega innbrot hjá Reykjabúi aðfaranótt mánudags. Í tilkynningu segja samtökin mikilvægt að háttsemi af þessu tagi sé skýrt fordæmd og stjórnvöld undirstriki að ólögmæt innkoma í landbúnaðarfyrirtæki verði ekki liðin. Matvælastofnun hyggt kæra brot á lögum um velferð dýra til lögreglu.
Samtökin segja í tilkynningu atvikið alvarlegt. Um er að ræða annað innbrotið í landbúnaðarfyrirtæki á skömmum tíma en brotist var inn hjá Stjörnugrís í síðasta mánuði. Ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar á Reykjabúi. Þar voru aðfaranótt mánudags unnin skemmdarverk á býlinu og skilin eftir stefnuyfirlýsing, eða svokölluð „manifestó“. Slík yfirlýsing var einnig skilin eftir í innbroti til Stjörnugríss. Jón Magnús Jónsson, bóndi á Reykjabúi, sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að einn maður hefði verið að verki. Hann hafi borið út fugla sem síðar þurfti að aflífa. „Hugur okkar er hjá eigendum Reykjabús og starfsfólki fyrirtækisins. Fyrir þá sem verða fyrir slíku er þetta ekki aðeins eignatjón heldur innrás inn á vinnustað þeirra og lífsviðurværi. Það er óásættanlegt að fólk sem starfar við matvælaframleiðslu þurfi að búa við slíkt óöryggi. Þegar tvö innbrot eiga sér stað á skömmum tíma og leiða bæði til tjóns, dauða eða aflífunar dýra og mikils álags á starfsfólk er full ástæða til að staldra við og spyrja hvert þessi þróun er að leiða okkur. Það þarf að senda skýr skilaboð um að innbrot, áreiti og ólögmætar aðgerðir eigi aldrei rétt á sér,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, í tilkynningu samtakanna. Innviðir og atvinnustarfsemi Samtökin benda á að búrekstur og matvælaframleiðsla séu ekki aðeins atvinnustarfsemi heldur einnig hluti af innviðum samfélagsins. Óviðkomandi aðgangur að framleiðslusvæðum geti haft áhrif á starfsöryggi, smitvarnir, dýraheilbrigði og matvælaöryggi. „Það er sérstakt áhyggjuefni að aðgerðir sem sagðar eru framkvæmdar í nafni dýravelferðar skuli í reynd hafa leitt til þess að dýr hafi drepist eða þurft að aflífa. Þá hefur aðgerð sem átti að snúast um velferð dýranna í raun snúist upp í andstæðu sína,“ segir í tilkynningu samtakanna. Afleiðingarnar hafi þannig áhrif á dýrin, starfsfólk og fjölskyldur þeirra. „Við eigum að geta átt opna og málefnalega umræðu um landbúnað, dýravelferð og matvælaframleiðslu. Slík umræða á fullan rétt á sér en það er grundvallaratriði að hún fari fram innan marka laga. Innbrot í atvinnuhúsnæði eru ekki eðlilegt tjáningarform heldur lögbrot,“ segir Margrét. Kæra til lögreglu „Matvælastofnun áréttar að innbrot inn til bænda og/eða fyrirtækja sem halda dýr, þar sem dýr eru rekin út, verða mögulega fyrir meiðslum eða skaða vegna smitefna sem berast í húsin, eru brot á lögum um velferð dýra nr. 55/2013,“ segir í tilkynningu frá Mast. Slík reynsla sé ekki dýrum til hagsbóta heldur geti hún mögulega haft alvarlegar afleiðingar fyrir velferð dýranna. Þar má nefna streitu, ótta, þjáningu, meiðsli og dauða. „Í kjölfar slíkra innbrota hefur þurft að aflífa dýr. Á búum eru almennt miklar smitvarnir og innbrot með þessum hætti geta borið í húsin ný smitefni sem geta haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar fyrir öll dýrin í húsinu.“ Forsvarsmenn Matvælastofnunar hyggjast fylgja málinu eftir og kæra brot á lögum um velferð dýra til lögreglu. Fréttin var uppfærð með tilkynningu Matvælastofnunar.
Matvælaframleiðsla Mosfellsbær Dýr Fuglar Dýraheilbrigði Tengdar fréttir Skemmdarvargarnir skildu eftir „manifestó“ Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir „manifestó“, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi. 12. maí 2026 12:00 Innbrot hjá Stjörnugrís og ólga meðal flugmanna Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við um innbrot inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi aðfararnótt mánudags þar sem svínum var gefið frelsi. 12. maí 2026 11:37 Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Innlent Fleiri fréttir „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Horfði á gamla fundi til að undirbúa sig „Góður dagur fyrir nýja tíma í Reykjavík“ Fyrsti fundur borgarstjórnar, ný rannsóknarnefnd og bein Jónasar Rannsóknarnefnd mun skoða aðstæður barna á einkaheimilum Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Fasteignamat lækkar að raunvirði „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Bein útsending: Kynna fasteignamat ársins 2027 Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Breyta hlaupaleiðum í Reykjavíkurmaraþoninu Sjá meira
Skemmdarvargarnir skildu eftir „manifestó“ Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir „manifestó“, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi. 12. maí 2026 12:00
Innbrot hjá Stjörnugrís og ólga meðal flugmanna Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við um innbrot inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi aðfararnótt mánudags þar sem svínum var gefið frelsi. 12. maí 2026 11:37