„Þetta hefði ekki getað endað betur“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. júní 2026 08:31 Arnar Freyr er á förum frá Melsungen en skilur við félagið í frábærum málum. EHF EUROPEAN LEAGUE Handboltamaðurinn Arnar Freyr Arnarsson fékk hinn fullkomna endi á tíma sínum hjá Melsungen þegar hann varð Evrópudeildarmeistari um helgina.
Arnar hefur upplifað tímana tvenna á sínum sex árum hjá félaginu en ekki fagnað meistaratitli fyrr en um helgina. Melsungen vann Evrópudeildina eftir sigur gegn Flensburg í undanúrslitum og hádramatískan eins marks sigur gegn Kiel í úrslitaleiknum. Arnar skoraði tvö mörk í báðum leikjum. „Hvað á maður að segja? Þetta var bara yndislegt, ólýsandi,“ sagði Arnar hress í viðtali sem var sýnt í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Miðað við stöðu þessara þýsku liða í deildinni heima fyrir var Melsungen klárlega ekki talið sigurstranglegt gegn Flensburg og Kiel. „Alls ekki. Við vorum underdogs en við vorum þarna í fyrra líka, þannig að við vorum með reynsluna og okkur langaði rosa mikið til að sigra þetta í ár. En jú það má alveg segja að við höfum verið léttir underdogs þarna.“ Þetta var líka ekki bara fyrsti titill Arnars hjá Melsungen heldur fyrsti titillinn í sögu þessa félags, sem hefur verið í mikilli uppbyggingu undanfarin ár. „Það var búið að vera mikið af róteringum í liðinu en undanfarin þrjú ár hefur sami kjarninn verið. Og þessi kjarni hefur verið að komast í Final Four helgar og svona. Það er mjög mikilvægt í svona stórum og löngum keppnum að halda í sama kjarna.“ Arnar kveður Melsungen sem Evrópudeildarmeistari.EHF EUROPEAN LEAGUE Línumaðurinn mun svo vitja nýrra ævintýra hjá Flensburg á næsta tímabili en fékk hina fullkomna kveðjustund. „Þetta hefði ekki getað endað betur. Maður er búinn að vera hérna í sex ár, þannig að þetta er langur tími. Frábært að enda tímabilið og minn tíma hér hjá Melsungen með einum titli, það bara gerist ekki betra.“ Bikar á loft! EHF EUROPEAN LEAGUE Reynir Þór Stefánsson er einnig leikmaður Melsungen og varð Evrópudeildarmeistari um helgina. Hann er á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu en verður ekki lengi eini Íslendingurinn í Melsungen. Kærasta hans, handboltakonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, er á leið út í atvinnumennsku.
Þýski handboltinn Evrópudeild karla í handbolta Tengdar fréttir Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Hinn ungi og stórefnilegi Reynir Þór Stefánsson átti fínasta leik með MT Melsungen í þýsku bundesligunni í handbolta í kvöld. 26. desember 2025 18:09 „Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“ Handboltakonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín heillaði þýskan þjálfara á HM með íslenska landsliðinu og flytur í sumar til Þýskalands, þar sem kærasti hennar spilar einnig. 25. mars 2026 10:03 Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira
Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Hinn ungi og stórefnilegi Reynir Þór Stefánsson átti fínasta leik með MT Melsungen í þýsku bundesligunni í handbolta í kvöld. 26. desember 2025 18:09
„Gaman að hann hafi tekið eftir mér þar“ Handboltakonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín heillaði þýskan þjálfara á HM með íslenska landsliðinu og flytur í sumar til Þýskalands, þar sem kærasti hennar spilar einnig. 25. mars 2026 10:03