Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sindri Sverrisson skrifar 3. júní 2026 13:02 Guðjón Valur Sigurðsson er með Gummersbach í 4. sæti þýsku deildarinnar og getur ekki endað neðar. Það myndi duga til að komast í Evrópudeildina á næstu leiktíð. Getty/Michael Hundt Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach hafa átt magnaða leiktíð í þýsku 1. deildinni í handbolta og eiga enn fræðilega möguleika á að komast í Meistaradeild Evrópu. Hann lýsir yfir vonbrigðum með að í baráttunni um sæti þar gæti lið Melsungen grætt á að tapa.
Tvö efstu lið þýsku deildarinnar eiga öruggt sæti í Meistaradeild Evrópu og Melsungen, lið Arnars Freys Arnarssonar og Reynis Þórs Stefánssonar, gæti svo komist þangað sem Evrópudeildarmeistari. Það sem gæti stöðvað Melsungen er ef að Füchse Berlín næði að vinna Meistaradeild Evrópu en myndi enda í 3. sæti þýsku deildarinnar. Þá ætti Füchse meiri rétt en Melsungen á að komast í Meistaradeildina. Þessi tvö lið mætast einmitt á morgun og með því að tapa gætu Melsungen-menn því hjálpað Berlínarrefunum að ná 2. sæti, og þannig hjálpað sjálfum sér að fá sæti í Meistaradeildinni. Það er vel mögulegt að þetta gerist. Füchse er nefnilega eitt fjögurra liða sem eftir eru í Meistaradeildinni og situr í 2. sæti þýsku deildarinnar, aðeins stigi fyrir ofan Flensburg og þremur fyrir ofan Gummersbach. Standings provided by Sofascore Gummersbach mætir meisturum Magdeburg á útivelli í kvöld og þarf að vinna þann leik sem og Rhein-Neckar Löwen í lokaumferðinni á sunnudag. Guðjón Valur og hans menn þurfa að vinna þessa tvo leiki og treysta á að Flensburg vinni ekki Eisenach á morgun, og að Füchse tapi fyrir bæði Melsungen og svo gegn Flensburg á sunnudaginn. Guðjón Valur vill lítið spá í stöðunni en er þó skiljanlega ósáttur við það að lið græði á að tapa leik. Ósáttur við að það borgi sig fyrir Melsungen að tapa „Reglurnar eru eins og þær eru. Við erum í fjórða sæti og endum líklega þar. Við gerum samt allt sem við getum til að fá sem mest út úr síðustu tveimur leikjunum. Ég er alveg sáttur við það að liðið sem vinnur Evrópudeildina komist í Meistaradeild Evrópu. En ég er ósáttur við að Melsungen viti ekki enn með vissu hvort liðið kemst þangað og að það borgi sig fyrir liðið að tapa á fimmtudaginn,“ sagði Guðjón Valur á mánudaginn, samkvæmt þýska miðlinum Oberberg Aktuell. Hann veit að allt þarf að ganga upp til að vinna besta lið landsins, Magdeburg, í kvöld en sama hvernig tímabilið endar þá er ljóst að Guðjón og hans menn mega vera stoltir af tímabilinu. „Við höfum átt stórkostlegt tímabil. Strákarnir geta og ættu að vera stoltir af því og ekki láta reglurnar angra sig,“ sagði Guðjón.
Þýski handboltinn Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira