Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. júní 2026 19:33 Evrópudeildarmeistarar Melsungen munu fá sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili. melsungen MT Melsungen mun leika í Meistaradeildinni á næsta tímabili en það varð ljóst eftir tap liðsins gegn Fuchse Berlin í næstsíðustu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar. Refirnir frá Berlín hafa nú tryggt sér 2. sæti deildarinnar.
Furðuleg staða var komin upp í þýsku úrvalsdeildinni þar sem Melsungen græddi meira á því að tapa þessum leik en að vinna hann. Melsungen vann Evrópudeildina og fær því sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili en hefði getað misst það frá sér með sigri í kvöld. Ef Melsungen hefði unnið leikinn hefði Fuchse Berlin verið í 3. sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. Ef Berlin hefði svo endað í 3. sæti en unnið Meistaradeildina um þarnæstu helgi, þá hefði Melsungen verið hent úr Meistaradeildinni og Berlin fengið sætið í staðinn. Melsungen þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að það gerist, tapið í kvöld tryggði liðinu sæti í Meistaradeildinni. Nema ef Berlin tapar með ævintýralega miklum mun í lokaumferðinni. Flensburg fer því svekkt á koddann, þrátt fyrir 36-31 sigur gegn Eisenach í kvöld. Flensburg er í 3. sætinu en þyrfti að vinna upp tveggja stiga og rúmlega fimmtíu marka mismun í lokaumferðinni. Reynir Þór Stefánsson skoraði 3 mörk og Arnar Freyr Arnarsson skoraði 1 mark fyrir Melsungen í tapinu gegn Fuchse Berlin.
Þýski handboltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Fleiri fréttir Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ „Meira en tvö stig undir“ Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Sjá meira