Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. júní 2026 13:41 Sullivan er stærsti hluteigandi West Ham en hefur sagt af sér stjórnarformennsku. Crystal Pix/MB Media/Getty Images David Sullivan hefur ákveðið að segja af sér stjórnarformennsku hjá enska knattspyrnufélaginu West Ham. Sullivan segir falskar ásakanir um hans einkalíf eiga eftir að opinberast á næstu dögum.
Sullivan tekur skýrt fram að ásakanirnar sem verði opinberaðar hafi ekkert með störf hans hjá West Ham að gera. Hann hefur verið formaður félagsins síðustu sextán ár. Forstjóri félagsins, Karim Virani, mun taka að sér störf formanns samhliða því að stýra daglegum reksti, þar til eftirmaður Sullivan finnst. Nóg hefur hann um að snúast. West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni og þarf að endurskipuleggja sig fyrir næsta tímabil í Championship deildinni. West Ham United have confirmed that Joint-Chair David Sullivan has stepped down from his position with immediate effect.Mr Sullivan has also resigned as a director of both WH Holding Limited and West Ham United Football Club, having been made aware of the impending publication… pic.twitter.com/mUAvYIUPK1— West Ham Football (@westhamfootball) June 6, 2026 Í yfirlýsingu sinni segir Sullivan: „Áratuga gamlar ásakanir um mitt einkalíf verða gerðar opinberar. Ég hafna þessum ásökunum alfarið. Þær eru rangar í alla staði og byggðar á fölskum staðreyndum… Ég mun berjast af fullum mætti gegn þessum ásökunum.“ Sullivan er enn stærsti hluteigandi West Ham. Hann hefur einn átt 38.8 prósent hlut í félaginu síðan viðskiptafélagi hans, David Gold, lést árið 2023. Saman áttu þeir áður Birmingham City frá 1993 til 2009. Þeir keyptu West Ham í janúar 2010 úr þrotabúi íslenska eignarhaldsfélagsins Straumur-Burðarás. Eggert Magnússon og Björgúlfur Guðmundsson voru stjórnarformenn West Ham áður en Sullivan og Gold tóku yfir. Sullivan og Gold sáu um flutninga West Ham frá Upton Park á London Stadium árið 2016 og voru við völd þegar liðið vann Sambandsdeildina árið 2023, sem var fyrsti stóri titill félagsins síðan FA bikarinn vannst árið 1980.
Enski boltinn West Ham United Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Sjá meira