Býst við skömmum frá KSÍ Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júní 2026 23:16 Þorkell Máni Pétursson er stjórnarmaður hjá KSÍ. Vísir/Bjarni Menn á Akureyri eru ekki parsáttir við tveggja leikja leikbann Danans Christian Greko Jakobsen vegna brots hans í 3-1 tapi fyrir Stjörnunni á dögunum. Þorkell Máni Pétursson, stjórnarmaður KSÍ, tekur undir gagnrýni Þórsara.
Jakobsen setti höfuð sitt í höfuð Guðmundar Kristjánssonar í leik liðanna á Akureyri í síðasta leik fyrir yfirstandandi landsleikjahlé. Hann fékk að launum verðskuldað rautt spjald og á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ var leikbann hans lengt í tvo leiki vegna ofbeldisfullrar hegðunar. Þórsarar eru ósáttir við lengd bannsins og að brotið hafi ekki verðskuldað lengingu banns. Þeir verða án Jakobsen í gríðarlega mikilvægum leikjum við ÍBV og FH eftir hléið. Einnig eru Isaac Atanga og Atli Sigurjónsson frá og Sebastian Hauglund er farinn. Máni Pétursson er stuðningsmaður Stjörnunnar og situr í stjórn KSÍ. Hann tekur undir gagnrýnina, segist ekki skilja lengd bannsins. En býst þó við skömmum frá KSÍ fyrir að gagnrýna niðurstöðuna. „Það er einn leikmaður sem tekur þarna skrítið dæmi, fær á sig tveggja leikja bann. Ég skil ekki af hverju hann fékk tveggja leikja bann, ég verð nú bara að segja það,“ sagði Máni í Besta spjallinu á Fótbolti.net. „Ég fæ örugglega símtal úr Laugardalnum þar sem ég er skammaður fyrir að vera að setja út á þessa hluti,“ sagði Máni. „Mér fannst þetta of þungur dómur að því leyti, en kjánaleg hegðun engu að síður.“
KSÍ Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Enski boltinn Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Sjá meira