Handbolti

„Hann breytti kúlturnum“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Gummi Gumm gerði mikið fyrir Melsungen að sögn Arnars.
Gummi Gumm gerði mikið fyrir Melsungen að sögn Arnars. getty / vísir

Arnar Freyr Arnarsson, leikmaður Melsungen, segir þjálfarann Guðmund Guðmundsson hafa gjörbreytt félaginu þegar hann tók við stjórnartaumunum.

Eftir að hafa rétt misst af þýska meistaratitlinum í fyrra vann Melsungen fyrsta stóra titil í sögu félagsins þegar liðið varð Evrópudeildarmeistari á dögunum. Engan hafði órað fyrir því þegar Melsungen var miðlungslið í þýska handboltanum fyrir nokkrum árum síðan.

Guðmundur Guðmundsson tók við stjórnartaumunum árið 2020, þegar hann var enn landsliðsþjálfari Íslands.

„Klúbburinn var í uppbyggingarfasa og hann breytti kúlturnum. Við byrjuðum að hlaupa meira og lyfta meira, æfingar urðu harðari og öll umgjörðin í kringum klúbbinn breyttist líka. Hann fær til okkar góða leikmenn sem voru hérna í smá tíma, svo tekur Roberto [Garcia] við og byggði á því.“

Guðmundur fer yfir málin með Arnari. Swen Pförtner/picture alliance via Getty Images

Spánverjinn Garcia sem tók við starfi Guðmundar hjá Melsungen átti síðar eftir að vera orðaður við þjálfarastarfið hjá íslenska landsliðinu þegar Guðmundur hætti þar.

„Já það kom einhver orðrómur um það en svo tókum við videofund. Hann talaði við mig og Elvar Örn [Jónsson, þáverandi leikmann Melsungen] um þetta. Spurði okkur bara hvað þetta væri nú og sagði að það hefði ekkert verið heyrt í honum, en maður veit ekkert um það.“

„Hann er frábær þjálfari og hefur gert mikið fyrir okkur, bætt mig sérstaklega mikið. Hann er með aðeins öðruvísi sýn en flestir þjálfarar, svona spænskan stíl og pælir mikið í smáatriðum,“ sagði Arnar um Garcia að lokum. 

Arnar spilar sinn síðasta leik fyrir Melsungen í dag og færir sig um set til Flensburg í sumar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×