Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. júní 2026 12:03 Úrræðið opnaði í Ármúla um áramótin. Vísir/Vilhelm Kalla þurfti til lögreglu að Konukoti í síðustu viku og stendur til að bæta lýsingu og fjölga myndavélum vegna atviks sem þar kom upp, að sögn sviðsstjóra velferðarsviðs hjá Reykjavíkurborg, sem segir lýsingar fyrirtækjaeigenda um ófremdarástand í götunni þó koma á óvart þar sem reksturinn hafi heilt yfir gengið vel að hennar mati.
Fullyrt er í umfjöllun DV sem birt var um helgina að fyrirtækjaeigendur í Ármúla í Reykjavík lýsi því sem kallað er ófremdarástand í götunni vegna skjólstæðinga Konukots í Ármúla 34. Það lýsi sér í reglulegum komum lögreglu- og sjúkrabíla, óþrifnaði í formi sprautunála við húsnæði og skemmdarverkum sem unnin séu á bílum. Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs hjá Reykjavíkurborg segir umfjöllunina koma á óvart en Konukot flutti í desember síðastliðnum úr Eskihlíð og í húsnæðið í Ármúla. „Satt að segja koma þessar lýsingar okkur talsvert á óvart og við könnumst ekki við að það séu fjölmörg atvik að koma þarna upp og jafnvel á hverjum degi. Svo koma líka fram þarna staðhæfingar sem við könnumst ekki við og konunum í Konukoti eru ætlaðar ýmsir hlutir, þannig að við svona könnumst ekki alveg við þessar lýsingar.“ Konurnar séu á viðkvæmum stað í sínu lífi og ljóst að enginn leiti í neyðarskýli af gamni sínu. Rannveig segir það þó gerast að kalla þurfi til lögreglu. „Því er ekki að neita að það koma upp atvik og það kom upp atvik í síðustu viku sem við brugðumst við og erum að setja á aðgerðaráætlun slík atvik, með því að auka viðveru vorteymisins okkar á staðnum næstu daga og bæta úr lýsingu og fjölga myndavélum og svo erum við líka í góðu samstarfi við lögreglu og heilbrigðisyfirvöld.“ Reksturinn sé með öll tilskilin leyfi og ljóst að aðstaðan sé mun betri heldur en hún hafi verið á sínum tíma í Eskihlíð. Þú nefnir þetta atvik í síðustu viku, erum við að tala um að það þurfti að kalla til lögreglu, erum við að tala um einhverskonar ógn eða þess háttar? „Ég myndi ekki segja að það hafi verið ógn en það var kölluð til lögregla, það er alveg rétt en við erum að bregðast við því vegna þessa atviks sem kom upp og erum með aðgerðir til að bregðast við í slíkum tilvikum. Starfsfólkið í þessum úrræðum mun vera í samtali við fyrirtækjaeigendur í nágrenninu og ég hef fulla trú á því að við getum verið þarna í sátt og samlyndi og munum leggja okkur öll fram til að svo geti verið.“
Málefni heimilislausra Reykjavík Fíkn Félagsmál Jafnréttismál Heilbrigðismál Geðheilbrigði Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira