Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. júní 2026 23:15 Áverkar eftir bílbeltið voru líkt og maðurinn hefði setið í farþegasætinu. Getty Vottorð frá kírópraktor varð til þess að maður var sýknaður af ákæru um ölvunarakstur. Meiðsli eftir bílbeltið gáfu til kynna að hann hefði setið í farþegasætinu.
Þann 29. september 2025 ók sérsveitin fram á umferðarslys en er þeir nálguðust steig maðurinn, sem síðar var ákærður, út úr bílnum ökumannsmegin. Að mati fulltrúa sérsveitarinnar var megn áfengislykt af manninum og neitaði hann að blása í áfengismæli. Er lögregluna bar að garði sagðist hann vera eigandi bílsins en neitaði því að hann hefði ekið bílnum. Hann viðurkenndi að vera ölvaður og mældist áfengi í blóði hans. Fyrir dómnum sagði maðurinn að hann hefði verið á skemmtun, rifist við eiginkonu sína og þess vegna viljað snúa annað. Hann hafi nálgast hóp manna fyrir utan skemmtunina og einn þeirra, sem sagðist vera í ökuhæfu ástandi, sagðist geta keyrt manninn heim. Maðurinn vissi ekki hvað meintur ökumaður hét en um leið og umferðarslysið varð hafi hann farið út úr bílnum og hlaupið burt. Leitaði til kírópraktors Ákæruvaldið taldi sögu hans ekki trúverðuga, sér í lagi þar sem hann sat í sæti ökumannsins og fór þaðan út úr bílnum þegar sérsveitin mætti á vettvang. Maðurinn lagði hins vegar fyrir dóminn vottorð kírópraktors sem hann var í meðferð hjá vegna stoðkerfisverkja. Hann leitaði til kírópraktorsins tæpum þremur vikum eftir umferðarslysið vegna verkja í baki og doða í vinstri handlegg. „Við skoðun hafi komið í ljós tognun í vinstri öxl og baki, sem hafi valdið „ertingu á ulnar taug þannig dofa niður í hendina“. Aftanverð öxl hafi verið mjög snertiaum og stirð í öllum hreyfingum. Mikil eymsli hafi verið í vinstri spjaldlið og vont að lyfta vinstri fæti og sitja,“ segir í dómnum. „Ákærði hafi verið með sjáanlega bólgu, eymsli og verk við snertingu yfir brjóstið, frá hægri öxl niður á vinstra brjóst, eftir bílbelti.“ Ekki hafið yfir skynsamlegan vafa Kírópraktorinn staðfesti vottorðið fyrir dómi. Dómurinn mat svo að það væri ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hafi gerst sekur um ölvunarakstur. Þá samsvari meiðslin sem kírópraktorinn lýsti, það er að segja bólgan frá hægri öxl niður á vinstra brjóst, því að maðurinn hafi setið í farþegasætinu. Hafi hann setið í ökumannssætinu hefði bólgan verið öfug, frá vinstri öxl niður á hægra brjóst. Maðurinn var sýknaður af ákærunni. Dómurinn var kveðinn upp þann 8. júní í Héraðsdómi Norðurlands vestra. Allur sakarkostnaður verður greiddur úr ríkissjóði.
Dómsmál Samgönguslys Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira