Viðskipti innlent

Snorri í stöðu fram­kvæmda­stjóra

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Snorri Páll er nýr framkvæmdastjóri.
Snorri Páll er nýr framkvæmdastjóri. Aðsend

Snorri Páll Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Distica. Hann kemur frá Alvotech þar sem hann gengdi ýmsum stjórnendahlutverkum.

Snorri er viðskiptafræðingur að mennt með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá Copenhagen Business School í Kaupmannahöfn. Í fréttatilkynningu segir að hann búi yfir víðtækri reynslu af rekstri, innkaupum og birgðastrýingu. Hann hafi meðal annars starfað hjá Landspítalanum á sviði aðfangakeðjustýringar og hjá Maersk í Danmörku.

Snorri Páll snýr til Distica eftir fimm ára starf hjá Alvotech. Einnig hefur hann setið í stjórn Stjórnvísis frá árinu 2023.

Hann tekur við af Júlíu Rós Atladóttur sem sinnti starfinu í fimm ár.

„Ég vil þakka fráfarandi framkvæmdarstjóra, Júlíu Rós Atladóttur, fyrir mikilvægt framlag hennar til uppbyggingar og þróunar Distica á undanförnum árum. Undir hennar stjórn hefur félagið eflst verulega og styrkt stöðu sína á markaði. Við bjóðum Snorra Pál velkominn til starfa og hlökkum til að vinna með honum að áframhaldandi vexti og sókn félagsins,“ er jaft eftir Jóni Björnssyni, stjórnarformanni Distica, í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×