Handbolti

Engin Ungverjagrýla á HM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ísland vann Ungverjaland á EM í janúar í spennuleik. Það verður ekki endurtekning á þeim leik á næsta ári.
Ísland vann Ungverjaland á EM í janúar í spennuleik. Það verður ekki endurtekning á þeim leik á næsta ári. EPA/Johan Nilsson

Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, hefur greint frá því hvaða tvær þjóðir fá boðsmiða á HM karla næsta janúar.

Margir bjuggust við því að Ungverjar myndu fá annan boðsmiðann en það gekk ekki. Við þurfum því ekki að hafa áhyggjur af neinni Ungverjagrýlu í upphafi næsta árs. Sú grýla var reyndar jörðuð á síðasta móti.

Það voru Tyrkland og Sádi Arabía sem fengu boðsmiðana sem þrettán þjóðir sóttu um að fá.

Tyrkland verður á meðal þeirra bestu í fyrsta skipti í sögunni og vonast IHF til þess að það muni auka áhugann á handbolta í landinu til muna.

Þetta verður aftur á móti í ellefta sinn sem Sádarnir fara á HM en þeir voru síðast með 2023.

Dregið verður í riðla á morgun og svona eru styrkleikaflokkarnir:

1: Ísland, Danmörk, Þýskaland, Króatía, Portúgal, Svíþjóð, Egyptaland, Argentína.

2: Frakkland, Slóvenía, Noregur, Serbía, Spánn, Ítalía, Færeyjar, Norður-Makedónía

3: Grikkland, Pólland, Brasilía, Barein, Túnis, Grænhöfðaeyjar, Síle, Bandaríkin

4: Katar, Kúveit, Japan, Alsír, Angóla, Úrúgvæ, Tyrkland, Sádi Arabía.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×