Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Lovísa Arnardóttir skrifar 9. júní 2026 13:52 Hjúkrunarheimilið Móberg á Selfossi. Arkitektúruppreisnin Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja það ekki rétt sem kemur fram í frétt RÚV um að loka eigi hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og þannig 20 hjúkrunarrýmum. Þau segja fólk ekki þurfa að óttast að vera skilið frá maka eða flutt fjarri heimabyggð.
Í sameiginlegri tilkynningu stofnunarinnar og ráðuneytisins á vef Stjórnarráðsins kemur fram að gert sé ráð fyrir því að um mitt næsta ár hefjist fyrsti áfangi framkvæmda við endurbætur og viðbyggingu húsnæðis Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Markmið verkefnisins sé að bæta húsnæðisaðstöðu, styrkja þjónustu og skapa betri umgjörð fyrir sjúklinga, íbúa og starfsfólk til framtíðar. Þegar framkvæmdir hefjast, eftir um það bil eitt ár, verði hjúkrunardeildinni Ljósheimum, þar sem eru 20 hjúkrunarrými, lokað og starfsemi heilsugæslunnar færð þangað en engar breytingar verða á rekstri Fossheima. Í tilkynningu segir að þegar nær dregur lokun Ljósheima verði hætt að taka við nýjum íbúum inn á hjúkrunardeildina þegar rými losna. Þegar rekstri deildarinnar verði svo hætt um mitt næsta ár verði íbúunum sem þar búa boðinn flutningur á annað hjúkrunarheimili. Þar koma til greina hjúkrunardeildin Fossheimar, hjúkrunarheimilið Móberg og hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði eða annað hjúkrunarheimili í samráði við óskir íbúa. Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum „Stjórnendur og starfsfólk HSU leggja metnað sinn í vandaðan undirbúning fyrir lokun Ljósheima að ári þannig að sem minnst rask verði á högum íbúa hjúkrunardeildarinnar og aðstandenda þeirra. Enginn þarf að óttast að vera skilinn frá maka sínum eða gert að flytja á hjúkrunarheimili um langan veg fjarri sinni heimabyggð,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að þó svo að Ljósheimar loki muni hjúkrunarrýmum ekki fækka á Suðurlandi því um mitt næsta ár verði opnað nýtt hjúkrunarheimili, Ás, í Hveragerði. Þá fjölgi rýmum um 26. Þá muni hjúkrunarrými á Móbergi nýtast íbúum á Suðurlandi í auknum mæli eftir því sem líður á árið og rýmum fjölgar á höfuðborgarsvæðinu. Landspítalinn hafi haft forgang að 40 af 60 hjúkrunarrýmum á Móbergi vegna skorts á hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu en þessi skortur sé ekki lengur fyrir hendi.
Árborg Hjúkrunarheimili Landspítalinn Heilbrigðismál Hveragerði Eldri borgarar Tengdar fréttir Nýtt 60 íbúa hjúkrunarheimili á Selfossi – 40 fyrir höfuðborgarsvæðið Ný styttist óðum í að nýtt hjúkrunarheimili verði opnað á Selfossi fyrir sextíu íbúa. Fjörutíu manns af höfuðborgarsvæðinu munu fá inni á nýja heimilinu. 30. janúar 2022 20:04 Nýju hjúkrunarheimili fagnað í Árborg Bæjarstjóri Árborgar segir að um langa hríð hafi verið mikil þörf fyrir fjölgun hjúkrunarrýma og biðlistar í Árnessýslu verið langir. 14. janúar 2016 13:00 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira
Nýtt 60 íbúa hjúkrunarheimili á Selfossi – 40 fyrir höfuðborgarsvæðið Ný styttist óðum í að nýtt hjúkrunarheimili verði opnað á Selfossi fyrir sextíu íbúa. Fjörutíu manns af höfuðborgarsvæðinu munu fá inni á nýja heimilinu. 30. janúar 2022 20:04
Nýju hjúkrunarheimili fagnað í Árborg Bæjarstjóri Árborgar segir að um langa hríð hafi verið mikil þörf fyrir fjölgun hjúkrunarrýma og biðlistar í Árnessýslu verið langir. 14. janúar 2016 13:00