„Mjög venjulegt sumarveður“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. júní 2026 16:23 Skúrir og klakkar myndast þegar kalt er í háloftunum að sögn veðurfræðings. Vísir/Vilhelm Úrkomuna, sem hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu grátt síðustu daga, segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, vera „mjög venjulegt sumarveður“ í samtali við Vísi.
Hann segir úrkomuna vera heiðarlegar „skúradembur“. Hann segir þær yfirleitt ekki standa lengi yfir í einu og þær einkennist af stórum regndropum. Kalt loft í háloftunum veldur slíkri úrkomu og klökkum að sögn Birgis. Hins vegar seilist hlýtt loft yfir landið á næstu dögum og hitinn gæti náð ágætis hæðum á suðurhluta landsins, segir hann. Samkvæmt spá á vef Veðurstofunnar nær hitinn allt að sautján gráðum í Reykjavík á fimmtudag. „Næstu daga ætti fólk ekki að geta kvartað mikið hérna á vesturhorninu,“ segir Birgir. Ekki verður eins hlýtt á Norður- og Austurlandi, en þar segir hann súldarloft væntanlegt. Veðurhorfur á landinu næstu daga samkvæmt Veðurstofu Íslands: Á morgun: Norðlæg eða breytileg átt 3-10 á morgun og víða líkur á skúrum, en kólnar á Norðaustur- og Austurlandi með rigningu eða súld. Bætir í vind austantil síðdegis. Á fimmtudag:Austan og norðaustan 5-13 m/s, en hægari austanlands. Súld norðaustantil, annars bjart með köflum, en víða dálítil væta um kvöldið. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast á Vesturlandi.Á föstudag:Norðaustlæg eða breytileg átt 5-13. Súld eða dálítil rigning og hiti 6 til 12 stig, en þurrt að mestu suðvestanlands með hita að 16 stigum.Á laugardag:Hæg norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en súld norðaustantil og stöku síðdegisskúrir á Suðurlandi. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira