Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Árni Sæberg skrifar 10. júní 2026 13:12 Náttúruminjasafn Íslands er til húsa á Seltjarnarnesi. Vísir/Vilhelm Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafa ákveðið að vinna að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu frumathugunar. Ítrekað hefur verið bent á skörun verkefna stofnananna tveggja, meðal annars í skýrslum Ríkisendurskoðunar.
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að stofnanirnar tvær séu ólíkar að stærð og umfangi. Náttúrufræðistofnun sé öflug rannsóknar- og þekkingastofnun með um áttatíu stöðugildi víðsvegar um landið. Náttúruminjasafn Íslands sé lítil stofnun með um átta stöðugildi, sé höfuðsafn á sviði náttúrufræða og hafi ríkt hlutverk sem slíkt. Í nóvember 2025 hafi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra skipað stýrihóp um gerð frumathugunar um sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Hópurinn hafi skilað niðurstöðum í lok mars en skýrsluna megi nálgast hér. „Niðurstöður frumathugunarinnar sýna að veruleg tækifæri felast í sameiningu stofnananna. Með henni gæti orðið til öflug og heildstæð þekkingarstofnun um náttúru Íslands sem sameinar rannsóknir, vöktun, varðveislu og miðlun. Slík stofnun myndi styrkja innviði þekkingarsköpunar um íslenska náttúru, efla fræðslu og upplýsingamiðlun til almennings og skólasamfélagsins og styðja við stefnumótun í náttúruvernd, líffræðilegri fjölbreytni og loftslagsmálum.“ Á grundvelli þessarar vinnu hafi verið ákveðið að hefja formlegan undirbúning að sameiningu stofnananna og vinna að þeim lagabreytingum og öðrum ráðstöfunum sem nauðsynlegar séu til að hún geti orðið að veruleika.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Söfn Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira