Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Samúel Karl Ólason skrifar 11. júní 2026 10:01 Frá vinstri: Randy Bresnik, Luca Parmitano, Frank Rubio og Andre Douglas. NASA/John Kraus Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í gær hvaða fjórir geimfarar munu framkvæma næsta geimskot Artemis-áætlunarinnar. Þessir geimfarar eiga að fara á braut um jörðu og prófa þar lendingarför sem til stendur að reyna að lenda á tunglinu árið 2028. Þessari geimferð er lýst sem þeirri flóknustu um árabil.
Þá er hún nauðsynleg fyrir fyrstu mönnuðu geimferðina til yfirborðs tunglsins frá árinu 1972. Randy Bresnik mun leiða ferðina. Með honum fara einnig þeir Andre Douglas og Frank Rubio, sem eru geimfarar NASA eins og Bresnik. Fjórði geimfarinn verður Luca Parmitano frá Geimvísindastofnun Evrópu (ESA) en hann verður fyrsti evrópski geimfarinn til að taka beinan þátt í Artemis-áætluninni. Þessir fjórir geimfarar munu nota Space Launch System-eldflaug NASA og Orion-geimfar til að komast á braut um jörðu. Þar eiga þeir í kjölfarið að sýna fram á að hægt sé að tengja Orion við lendingarför sem eru í framleiðslu hjá bæði SpaceX og Blue Origin. Til stendur að reyna að tengjast annaðhvort einu af þessum lendingarförum eða báðum en það veltur á því hvernig þróun þeirra og framleiðsla mun ganga. Nýlega voru gerðar breytingar á Artemis-áætluninni, sem snýst um að senda menn aftur til tunglsins. Einu geimskoti var bætt við áætlunina og lendingu á tunglinu seinkað til ársins 2028. Í kjölfarið stendur til að lenda mönnuðu geimfari á tunglinu á hverju einasta ári, í ótilgreindan tíma. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær á næsta ári til stendur að senda geimfarana á braut um jörðu. Í millitíðinni eiga geimfararnir að æfa sig á Orion og einnig vera starfsmönnum SpaceX og Blue Origin innan handar varðandi lendingarförin. Starfsmenn SpaceX vinna að því að framleiða sérstaka útgáfu af Starship-geimfarinu sem á að verða hægt að lenda á tunglinu. Þá eru starfsmenn Blue Origin að smíða lendingarfar í breyttri útgáfu af geimfari sem þeir eiga fyrir og kallast Blue Moon. SpaceX hafði haft betur gegn Blue Origin og gert samning við NASA um að þróa eina lendingarfarið sem átti að nota í Artemis-áætluninni. Þróun Starship hefur gengið brösulega á undanförnum árum. Sean Duffy, fyrrverandi starfandi yfirmaður NASA, endurskoðaði þá ákvörðun í fyrra og gerði nýjan samning við Blue Origin um að þeir ættu einnig að framleiða lendingarfar. Sjá einnig: Musk kallar ráðherra heimskan og homma Elon Musk, eigandi SpaceX, brást reiður við þessum fregnum. Verða í geimnum í um tvær vikur Á vef NASA segir að lendingarfar Blue Origin eigi að geta verið á braut um jörðu í nokkrar vikur. Því verður fyrst skotið á loft á næsta ári og síðan taka geimfararnir á loft í Orion. Þá munu þeir æfa tengingu við lendingarfarið og vera tengdir því í um tvo daga og framkvæma tilraunir. Því næst munu þeir bíða á braut um jörðu á meðan lendingarfari SpaceX verður skotið á loft, áður en þeir tengjast því einnig og framkvæma sambærilegar æfingar og tilraunir. Eftir það eiga geimfararnir að lenda í Kyrrahafinu. Í heildina á geimferðin að taka um tvær vikur. Seinna á þessu ári stendur til að senda þrjú ómönnuð geimför til tunglsins. Þau á að nota til að leggja grunninn að Artemis 4 og byggingu bækistöðvar á yfirborði tunglsins.
Tunglið Bandaríkin Ítalía Artemis-áætlunin Geimurinn Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Sjá meira