Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júní 2026 23:17 Lionel Messi og Cristiano Ronaldo sitja hér hlið við hlið á verðlaunahátíð Knattspyrnusambands Evrópu fyrir nokkrum árum. Getty/Harold Cunningham Lionel Messi og Cristiano Ronaldo eru mættir á sitt sjötta heimsmeistaramót á ferlinum og setja með því met. Það eru ágætar líkur á því að þeir mætist á mótinu.
Það dreymir marga knattspyrnuáhugamenn um það að fá slíkan uppgjörsleik á þessu heimsmeistaramóti, leik upp á líf eða dauða á milli erkifjendanna Lionel Messi og Cristiano Ronaldo sem voru lengi tveir langbestu fótboltamenn heims. Þeir eru vissulega ekki saman í riðli en svo gæti vel farið að þeir mætist í útsláttarkeppni heimsmeistaramótsins. Nú hefst útsláttarkeppnin með 32 liða úrslitum í stað sextán liða úrslita áður. Hvert landslið þarf því að vinna fjóra leiki í útsláttarkeppninni til þess að tryggja sér sæti í sjálfum úrslitaleiknum. View this post on Instagram A post shared by beIN SPORTS Australia (@beinsports_aus) Messi hefur þegar spilað tvo úrslitaleiki á HM en Ronaldo hefur aldrei komist svo langt með portúgalska landsliðinu. Messi og félagar eru ríkjandi heimsmeistarar en fleiri sérfræðingar hafa meiri trú á Portúgal á mótinu í ár. En hvað þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á þessu HM? Messi og Ronaldo munu mætast fyrst í átta liða úrslitum keppninnar fari svo að Argentína og Portúgal vinni sína riðla. Messi og Ronaldo munu mætast fyrst í úrslitaleik keppninnar fari svo að aðeins önnur þjóðin vinni sinn riðil á sama tíma og hin endar í öðru sæti í sínum riðli. Messi og Ronaldo munu mætast strax í 32 liða úrslitum fari svo aðeins önnur þjóðin vinni sinn riðil á sama tíma og hin endar í þriðja sæti í sínum riðli. Messi og Ronaldo munu mætast fyrst í átta liða úrslitum keppninnar fari svo að önnur þjóðin endi í öðru sæti í sínum riðli á sama tíma og hin endi í þriðja sæti í sínum riðli. View this post on Instagram A post shared by theScore (@thescore)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Norsku treyjurnar uppseldar Sadio Mané hættur í landsliðinu en vill vera í kringum liðið áfram Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Tekinn við Portúgal og gæti stýrt Ronaldo á nýjan leik Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Árni Vilhjálms í Stjörnuna Manchester City kaupir efnilegan markvörð Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Sjá meira