Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. júní 2026 10:00 Vilhjálmur Alvar Þórarinsson ræddi reglubreytingarnar í Sportpakka Sýnar. vísir / lýður Nýjar reglur voru innleiddar fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem hefst í gær en hér á landi hafa þessar reglur verið í gildi frá því að Bestu deildirnar hófust. Einn besti dómari deildarinnar segir nýju reglurnar hafa reynst vel og býst við hröðum, skemmtilegum leikjum á HM. Tímasóun er þó ekki alveg úr sögunni.
Margar nýjar reglur verða innleiddar á HM. VAR dómarar fá auknar heimildir til að skipta sér af leiknum og ný rangstöðutækni verður tekin í notkun. Breytingarnar sem fjallað er um hér, og hafa sést í Bestu deildinni í sumar, snúa að vandamáli sem hrjáir alla fótboltaáhugamenn, tímasóun. Fjallað var um reglubreytingarnar í Sportpakka Sýnar í gærkvöld. Innslagið má sjá hér að neðan. Fimm sekúndna niðurtalning Dómarinn hefur nú heimild, ef honum finnst leikmenn vera eitthvað að drolla, til að hefja niðurtalningu. Fimm sekúndur í innköstum, hornspyrnum og markspyrnum. Ef þú ert of lengi þá fær hitt liðið boltann. „Ég held að þetta sé eitthvað sem knattspyrnuáhugafólk var að kalla eftir. Við höfum séð dæmi bara núna nýlega í Meistaradeildinni, þar sem oft tók allt upp í mínútu að taka eitt innkast. Þessi breyting á að hjálpa til að auka flæði leiksins og auka hraðann. Ég held að ég geti talað fyrir hönd allra dómara, þegar ég segi að við séum ánægðir með þessar breytingar. Þetta gefur okkur aukin tækifæri til að koma í veg fyrir að lið hægi óþarflega mikið á leiknum,“ segir Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, FIFA dómari. Vilhjálmur Alvar við störf. vísir Tíu sekúndur til að skipta Önnur tímasóunarregla snýr að skiptingum og íslenska landsliðið fékk að finna fyrir því þegar Kristian Hlynsson tók sér meira en tíu sekúndur í að fara út af. Ísak Snær Þorvaldsson þurfti að bíða í eina mínútu á hliðarlínunni og Ísland fékk á sig mark á meðan. „Við höfum tæklað þetta þannig hérna heima að við höldum skiltinu bara aðeins lengur uppi, þannig að tíminn byrjar að telja þegar skiltið fer niður. Dómarinn í Ísland-Japan var kannski full strangur, að mínu mati, en hann er líka dómari sem hefur ekki dæmt eftir þessum reglum áður. Ég held að þetta sé bara annað tól, eins og með innköstin og markspyrnurnar, til þess að hraða leiknum. Ég held að menn muni finna að þetta hjálpi til. Þetta hjálpar ekki liðum sem vilja hægja á leiknum en þetta hjálpar liðum sem vilja að leikurinn fari í gang sem fyrst aftur,“ segir Vilhjálmur. Ekki búið að ná utan um þetta Svo er dæmi um reglu sem nær ekki alveg fram tilgangi sínum og snýr að svokölluðum markmannsleikhléum, þegar markmenn gera sér upp meiðsli og hinir leikmenn liðsins halda fund. Þetta hefur verið bannað en það er samt engin refsing við þessu. „Skilaboðin frá FIFA eru þau að liðin eigi ekki að gera þetta, þetta verði illa séð, en það er í rauninni lítið hægt að gera ef liðin gera þetta. Það er ekki búið að ná utan um hvernig þú kemur algjörlega í veg fyrir þetta.“ Fjallað var um reglubreytingarnar í Sportpakka Sýnar í gærkvöld. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
FIFA Besta deild karla HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Sjá meira