Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Smári Jökull Jónsson skrifar 13. júní 2026 12:18 Opið verður í flugskýli Landhelgisgæslunnar í dag þar sem almenningi gefst meðal annars kostur á að skoða þyrlukost Gæslunnar. Vísir/Sigurjón Landhelgisgæslan fagnar hundrað ára afmæli á þessu ári og í dag gefst almenningi einstakt tækifæri til að skoða búnað gæslunnar. Gefst fólki meðal annars kostur á að skoða þyrlur og sprengjuleitarróbóta gæslunnar í návígi.
Gæslan opnaði dyrnar á flugskýli sínu á Reykjavíkurflugvelli nú klukkan tólf og verður tekið á móti gestum til klukkan fjögur í dag. Þar verður hægt að skoða margvíslegan búnað gæslunnar en að sögn Ásgeirs Erlendssonar upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar eru tólf ár síðan almenningi gafst færi á að heimsækja gæsluna síðast. Ásgeir Erlendsson er upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.Vísir/Vilhelm „Fólk það fær bara að komast algjörlega upp að og maður sér það að fólki finnst gaman að sjá þessi tæki. Hvort sem það eru þyrlurnar eða flugvélin, eða sprengjuleitarróbótinn eða köfunargræjunar eða sjókortin í raun og veru. Við búum svo vel að þetta eru spennandi hlutir,“ sagði Ásgeir í samtali við fréttastofu. „Fólki finnst vænt um Landhelgisgæsluna“ Landhelgisgæslan fagnar hundrað ára afmæli í ár og hefur staðið fyrir ýmsum viðburðum á afmælisárinu. Hafa skólabörn sem og almenningur meðal annars fengið tækifæri til að skoða varðskipin þegar þau liggja við bryggju. Ásgeir segir að gæslan hafi fundið að almenningur hefur áhuga á starfseminni. „Við höfum fundið það í þessum heimsóknum þar sem er verið að bjóða þjóðinni um borð í skipin okkar og við finnum líka fyrir miklum velvilja. Fólki finnst vænt um Landhelgisgæsluna og þess vegna viljum við bjóða fólki í heimsókn og koma og skoða og sjá.“ Klár ef það kemur útkall Eðli málsins eru ekki mörg tækifæri fyrir gæsluna að bjóða almenningi í heimsókn. slíkt krefjist mikillar skipulagningar. Til dæmis ef til útkalls kæmi. „Þá erum við með aðra þyrluna okkar þannig staðsetta að við verðum fljót að bregðast við. Þannig við erum í raun búin að plana fyrir öllu þegar kemur að þessari heimsókn.“
Landhelgisgæslan Sýningar á Íslandi Tímamót Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira