24 Jump Street á leiðinni Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. júní 2026 15:00 Handritið að 24 Jump Street er tilbúið og vinnsla á framhaldsmyndinni hafin. Framleiðsla er hafin á gamanmyndinni 24 Jump Street og eru Hollywood-stjörnurnar Channing Tatum, Jonah Hill og Ice Cube í viðræðum um að snúa aftur í seríuna. Myndin er framhald hinna vinsælu 21 Jump Street og 22 Jump Street.
Bransamiðillinn Variety greindi frá fregnunum í lok síðustu viku. Þar kemur fram að Rodney Rothman, sem leikstýrði Spider-Man: Into the Spider-Verse (2018), muni leikstýra myndinni en hann skrifaði einnig handritið með Jonah Hill og Meghan Malloy. Tvíeykið Lord og Miller, sem leikstýrðu fyrstu tveimur myndunum, snúa aftur sem framleiðendur ásamt Neal H. Mortiz. Sá síðastnefndi birti mynd af handriti 24 Jump Street á Instagram en framan á því stendur: „Það tók svo langan tíma að gera hana að við hoppuðum yfir eina.“ Fyrsta myndin, 21 Jump Street (2012), var endurgerð á samnefndum sjónvarpsþáttum frá níunda áratugnum og fjallaði um þá Schmidt (Hill) og Jenko (Tatum), tvær löggur sem þykjast vera menntaskólanemar til að afhjúpa glæpahring. Myndin sló í gegn, halaði inn 200 milljónum dala í miðasölu og gat af sér framhaldið 22 Jump Street (2014) þar sem þeir félaga endurtaka leikinn í háskóla. Þriðja myndin hefur legið fyrir hjá Sony í meira en áratug og lýsti Tatum handriti hinnar ókláruðu 23 Jump Street sem besta handriti þriðju myndar sem hann hefði nokkurn tímann lesið. Ekkert varð þó úr henni og enduðu aðstandendur á að skrifa nýtt handrit. Glöggir lesendur taka eftir því að titill nýju myndarinnar hoppar yfir 23 Jump Street í næsta númer fyrir ofan. Vafalaust er þar um að ræða einhvern sjálfsvísandi húmor en í lok annarrar myndarinnar þá var grínast með möguleg framhöld þar sem félagarnir tveir fara í leyni í læknanám, skiptinám, listnám og ýmislegt annað. Ekki liggur þó enn fyrir hvað þeir munu nákvæmlega gera í nýju myndinni. Hill er búinn að samþykkja að snúa aftur og hefjast viðræður við Tatum á næstunni.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira