Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Freyja Þórisdóttir skrifar 16. júní 2026 11:20 Hafþór Júlíus Björnsson á frumsýningu myndarinnar Masters of the Universe. Getty/Brianna Bryson Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson birti á dögunum færslu í Facebook-hópnum Garðabær – íbúar þar sem hann greinir frá því að maður, sem hann þekki ekki né kannist við, hafi verið á vappi fyrir utan heimili hans seint um kvöld. Nú biðlar hann til fólks að koma sér í samband við manninn.
Enginn þeirra sem hafa skrifað ummæli við færslu Hafþórs virðist kunna deili á manninum en margir hafa haft orð á því hve óheppilegt það væri, ef ske kynni að hann hefði verið að yfirfara húsið með innbrot í huga, að velja hús Hafþórs. „Af öllum húsunum í Garðabæ, þá valdi hann Fjallið,“ ritar Einar Bárðason, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT), en hann er einn þeirra sem skrifuðu undir færsluna. Í færslunni segir Hafþór manninn hafa komið að húsi sínu á tólfta tímanum og gengið alveg að útidyrum þess áður en hann hvarf svo á brott. „Ég kannast ekki við hann og hef áhuga á að ná tali af honum til að fá skýringu á erindinu. Ef einhver þekkir manninn eða veit hver hann er, má viðkomandi endilega hafa samband við mig í einkaskilaboðum,“ segir í færslunni. Einnig var að minnsta kosti einn hópmeðlimur sem sagðist hafa orðið þess var að sami maður hefði verið á gangi í Ásahverfinu í Garðabæ, skoðað inn um glugga og gengið í kringum hús. Ekki liggur fyrir hvort tilkynningar um innbrot hafi borist lögreglunni í Garðabæ.
Garðabær Kraftlyftingar Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira