Körfubolti

Hilmar Smári á­fram í Stjörnunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hilmar Smári í leik í síðustu úrslitakeppni. Stjarnan féll úr leik í undanúrslitum gegn Tindastólsmönnum. 
Hilmar Smári í leik í síðustu úrslitakeppni. Stjarnan féll úr leik í undanúrslitum gegn Tindastólsmönnum.  Vísir/Ernir Eyjólfsson

Hilmar Smári Henningsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Stjörnunnar.

Samkvæmt heimildum íþróttadeildar var Hilmar Smári eftirsóttur af fleiri liðum í Bónus-deildinni en hann verður áfram í Garðabænum. Stjarnan hefur því framlengt við bæði Hilmar og Ægi Þór Steinarsson en Emil Barja verður þjálfari liðsins eftir að Baldur Þór Ragnarsson ákvað að færa sig um set og tók við sem þjálfari Álftnesinga.

„Það er okkur mikill fengur að Hilmar Smári semji við Stjörnuna. Hilmar Smári hefur sýnt og sannað hversu góður leikmaður hann er og góðir leikmenn eiga heima í Stjörnunni, ” segir Einar Karl Birgisson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, í samtali við Vísi.

„Ég skoðaði alla möguleika sem í boði voru, mér hefur liðið vel í Stjörnunni og því var valið á endanum ekki flókið. Hér er umgjörð og aðbúnaður fyrsta flokks. Her líður mér vel,” segir Hilmar Smári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×