Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Lovísa Arnardóttir skrifar 18. júní 2026 10:51 Hannes segir matinn ekki hafa nýst þeim sem raunverulega þurftu á honum að halda. Vísir/Vilhelm og Facebook Hannes Bjarnason, svæðisforingi Hjálpræðishersins, segir miður að loka hafi þurft frískápnum við Hjálpræðisherinn. Hópur fólks hafi setið um matinn sem var settur í skápinn og grunur hafi leikið á um að hópurinn væri að selja matinn áfram. Hjálpræðisherinn gefur matinn áfram en með öðrum leiðum.
Frísskápar eru á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða ísskápa sem fólk getur sett mat í sem er við það að renna út og fólk tekið sem vantar, þarf eða vill. Frískápar eru til dæmis við Háteigs- og Laugarneskirkju og við Andrými í miðbæ Reykjavíkur. Frískápurinn sem var við Hjálpræðisherinn var ekki á þeirra vegum en fékk að vera á lóðinni. Tóku ekki matinn af kærleika Hannes segir þó ekki rétt sem kom fram í hópnum Frísskápur 108 að vopnuð átök hafi verið við ísskápana. „Ég er búinn að sjá ein slagsmál síðan ég byrjaði fyrir ári. Það er ekki stóra ástæðan fyrir lokuninni. Ástæðan er að það voru hópar fólks sem stokkuðu upp matinn og stjórnuðu þessu. Hérna komu bílar að sækja og þetta fólk er ekki hungrað og alls ekki að svelta og allar líkur á að þau ætli að selja öðrum þetta. Þau voru ekki að þessu af kærleika,“ segir hann. Dæmi um mat sem skilinn var eftir í skápnum. Facebook Því hafi verið tekin ákvörðun um að loka frísskápnum. „Það var líka ofboðslegt rusl, fólk gekk svo illa um. Á hverjum morgni voru ruslahaugar og mávar. Nágrannarnir voru allir brjálaðir. Þannig við ákváðum að kippa skápunum úr sambandi og hætta,“ segir hann og að tilraunin hafi verið fullreynd. Mæðrastyrksnefnd gefur áfram „Vörurnar sem við gefum fara nú til Mæðrastyrksnefndar og í dreifingu í gegnum nefndina,“ segir hann og að auk þess fari eitthvað í aðra frískápa á höfuðborgarsvæðinu. „Við gefum áfram en viljum ekki hafa þetta á lóðinni. Þetta var komið út fyrir það að við vorum raunverulega að vera til gagns fyrir þá sem þurfa á því að halda eða eru einhverjir að nýta og misnota þetta.“ Bjó í tjaldi við skápinn Hann segir eitt sumarið til dæmis mann hafa búið við frískápinn í tjaldi og hafi notað matinn og rafmagnið. Hann hafi stundum verið nakinn og óvissa um ástand hans. „Þannig það var engin ástæða til að búa við svona aðstæður lengur. Þetta snýst um gæðastjórnun, þetta á að hjálpa fólki, maturinn þarf að fara til þess sem þarf á því að halda, það er vont þegar aðrir eru að misnota og við náum ekki að stýra því,“ segir hann.
Deilihagkerfi Matur Umhverfismál Félagasamtök Reykjavík Tengdar fréttir Bakaði tugi bananabrauða úr bönunum nágrannanna og gaf þau öll Ung kona varði helginni í að baka bananabrauð úr bönunum sem hún fékk meðal annars hjá nágrönnum sínum. Brauðin fara í frískápa um borgina og til þeirra sem mest gætu þurft á að halda. 29. október 2023 21:55 „Fallegt samfélagslegt verkefni sem að gerir borgina betri“ Reykvíkingar ársins 2022 segja það hafa komið á óvart að þau hafi orðið fyrir valinu en þau komu á fót fyrsta íslenska frískápnum. Formaður borgarráðs segir þau vel að nafnsbótinni komin þar sem þau hafa fengið aðra Reykvíkinga með sér í lið til að bæta samfélagið. 20. júní 2022 21:00 Kamila og Marco valin Reykvíkingar ársins Vinirnir Kamila Walijewska og Marco Pizzolato eru Reykvíkingar ársins 2022. Formaður borgarráðs tilkynnti valið við opnun Elliðaána í morgun áður en þeim Kamilu og Marco var boðið að renna fyrir laxi. 20. júní 2022 09:59 Fékk tár í augun yfir matarsóun og opnaði frískáp Tveir vinir ákváðu að koma ísskápi fyrir í miðbæ Reykjavíkur til þess að sporna gegn matarsóun. Stórt samfélag hefur skapast í kringum ísskápinn sem einkennist af náungakærleika. 5. janúar 2022 20:30 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira
Bakaði tugi bananabrauða úr bönunum nágrannanna og gaf þau öll Ung kona varði helginni í að baka bananabrauð úr bönunum sem hún fékk meðal annars hjá nágrönnum sínum. Brauðin fara í frískápa um borgina og til þeirra sem mest gætu þurft á að halda. 29. október 2023 21:55
„Fallegt samfélagslegt verkefni sem að gerir borgina betri“ Reykvíkingar ársins 2022 segja það hafa komið á óvart að þau hafi orðið fyrir valinu en þau komu á fót fyrsta íslenska frískápnum. Formaður borgarráðs segir þau vel að nafnsbótinni komin þar sem þau hafa fengið aðra Reykvíkinga með sér í lið til að bæta samfélagið. 20. júní 2022 21:00
Kamila og Marco valin Reykvíkingar ársins Vinirnir Kamila Walijewska og Marco Pizzolato eru Reykvíkingar ársins 2022. Formaður borgarráðs tilkynnti valið við opnun Elliðaána í morgun áður en þeim Kamilu og Marco var boðið að renna fyrir laxi. 20. júní 2022 09:59
Fékk tár í augun yfir matarsóun og opnaði frískáp Tveir vinir ákváðu að koma ísskápi fyrir í miðbæ Reykjavíkur til þess að sporna gegn matarsóun. Stórt samfélag hefur skapast í kringum ísskápinn sem einkennist af náungakærleika. 5. janúar 2022 20:30