Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Smári Jökull Jónsson skrifar 18. júní 2026 12:02 Jónas Atli Gunnarsson er yfirhagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Vísir Vísbendingar eru um að væntingar séu litlar um hraða lækkun vaxta á næstunni segir yfirhagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þá séu áhrif vaxtahækkana síðustu mánaða ekki að fullu komin fram á fasteignamarkaði.
Samkvæmt nýrri mánaðaskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar einkennist lánamarkaður af aukinni ásókn heimila í óverðtryggð íbúðalán hjá bönkunum eftir að verðtryggð lán lífeyrissjóða voru allsráðandi í fyrra. Að sögn yfirhagfræðings HMS er engin ein augljós útskýring fyrir þessu. „Hluti af skýringunni gæti verið sú að lánsframboðið á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum hefur minnkað í kjölfar vaxtadómsins sem féll síðastliðið haust,“ segir Jónas Atli Gunnarsson hjá HMS. Fleiri taka lán á föstum vöxtum Þá séu fleiri sem taki lán á föstum vöxtum að breytilegum. „Það gefur allavega vísbendingu um að það eru kannski ekki miklar væntingar um að vextir lækki hratt á næstunni, að fólki vilji festa vextina eins og þeir eru akkúrat núna. Mögulega er það vegna þess að það er óvissuástand í efnahagsmálum.“ Þá sé vert að fylgjast með þeirri þróun að íbúðir séu lengur á markaði nú en áður. Tæplega fjórðungur allra íbúða sem voru til sölu í byrjun júní höfðu verið á söluskrá í meira en tólf mánuði. Áhrif vaxtahækkana ekki komin fram Jónas sér ekki breytingu í kortunum. „Við teljum áhrif þessara vaxtahækkana, sem hafa átt sér stað á síðustu mánuðum, ekki að fullu komin fram á fasteignamarkaðnum. Þannig að það er ekki útlit fyrir neinn viðsnúning, allavega miðað við fyrirliggjandi hagtölur.“ Einnig segir í skýrslunni að færri nýir leigusamningar hafi tekið gildi í ár miðað við í fyrra þrátt fyrir að skráningarskylda leigusamninga hafi tekið gildi um áramót. „Því hljótum við að draga þá ályktun að það er fjöldi heimila sem kjósa að skrá ekki leigusamninga. Við munum fylgjast náið með þessu og við höfum heimild til þess að beita sektum gegn leigusölum sem skrá ekki sína leigusamninga.“ Kemur það til greina? „Við hyggjumst beita þessum heimildum þegar við sjáum dæmi um að þessu sé ekki fylgt eftir,“ segir Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Fasteignamarkaður Leigumarkaður Efnahagsmál Lánamál Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira