Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. júní 2026 21:02 Hitabylgjan mun ekki gefa eftir fyrr en undir lok vikunnar, spáð er 41 gráðu í París á fimmtudag. Getty Hiti náði fjörutíu gráðum í borginni Bordeaux í dag. Rauðar veðurviðvaranir ná yfir um það bil hálft Frakkland á morgun auk þess sem appelsínugular viðvaranir gilda í stórum hluta landsins. Mikil hitabylgja gengur nú yfir Evrópu meðal annars vegna streymis heits lofts norður á bóginn frá Sahara-eyðimörkinni.
Frönsk stjórnvöld hafa gripið til þess ráðs að banna áfengisneyslu utandyra en landið fagnar í dag tónlistinni á hinni árlegu Fête de la Musique. Hefð er fyrir því á deginum að fólk komi saman og flytji tónlist undir berum himni. Er það gert til að minnka álag á neyðarþjónustu í því ástandi sem hitabylgjan hefur skapað. Í höfuðborg landsins, París, er spáð því að hiti muni ná fjörutíu gráðum á hverjum degi fram á fimmtudag. Rúmlega tíu milljónir manna búa á stórborgarsvæðinu. Hiti í Madríd er oft gífurlegur á sumrin. Getty Yfirvöld á Ítalíu hafa einnig þurft að berjast við hitabylgjuna. Víða í stórborgum gilda rauðar veðurviðvaranir og varað er við því að hiti muni fara yfir fjörutíu stig í stórum hluta landsins á morgun. Hitabylgjan hefur magnast upp síðustu daga og er búist við að hún nái hámarki á morgun, mánudag. Í Þýskalandi spáir hæst þrjátíu og sjö gráðum á morgun en á Spáni mun hiti ná fjörutíu gráðum samkvæmt spám, þar á meðal í höfuðborg landsins, Madríd. Fréttastofan AP greinir frá því að hitabylgjan hafi þegar valdið auknum fjölda drukknana í Evrópu þar sem fólk leiti út í vötn og ár í von um að kæla sig niður. Nýlega sýndi rannsókn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar fram á að rúmlega tvö hundruð þúsund manns hafi látið lífið vegna hita í Evrópu á síðustu fjórum árum. Búist er við að hitabylgjum sem þessari muni fara fjölgandi eftir því sem meðalhiti jarðar hækkar og loftslag breytist.
Loftslagsmál Frakkland Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira