Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Lovísa Arnardóttir skrifar 22. júní 2026 09:07 Páll telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. Samsett Páll Halldór Halldórsson, fjallamaður og meðlimur 4x4 Ferðaklubbnum, segir leiðsögumenn tala um að utanvegaakstur tveggja ferðamanna um helgina sé sá versti sem þeir hafi séð í 40 ár. Hann telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri.
Tveir erlendir ferðamenn voru sektaðir fyrir utanvegaakstur á Emstruleið og við Kötlujökul um helgina. Mennirnir keyrðu um á Land Rover-jeppum. Páll Halldór skrifaði færslu á Facebook-síðu sína um helgina þar sem hann auglýsti eftir mönnunum. Hann var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun en mikill fjöldi deildi færslunni hans og kommentaði á hana . Hann segir í Bítinu að menn komi gagngert til landsins til að aka utan vegar. „Þetta er hjartans mál fyrir Íslendinga alla, hvort sem þeir eru jeppamenn, leiðsögumenn eða almenningur, og ég fékk ekkert smá mikið af skilaboðum. Ég var bara eins og löggan. Ég gat rekið ferðir mannanna,“ segir Páll og að í skilaboðum og athugasemdum hafi hann getað rekið ferð þeirra í nærri beinni útsendingu á Austurleið, á Flúðir, til Þorlákshafnar og víðar. „Ég vissi alltaf hvar þeir voru, þetta er ótrúlegt.“ Hann segir að fólk sem elskar hálendið og fólk sem hefur atvinnu af því að fara með fólk þangað vilji hafa hlutina í ákveðnum skorðum. „Ég hef alveg stoppað svona fólk. Sumt fólk gerir kannski mistök, það veit ekki betur. Það leigir sér hérna kannski Yaris eða Duster, fer eitthvað aðeins út í sandinn og spólar einn hring og maður stoppar það,“ segir hann og að þau stoppi yfirleitt eftir einn hring og aðstoði við að laga. „En þegar menn fara einir upp, það er ekki búið að opna, þá er enginn að horfa á eftir þeim,“ segir hann og að það sé rosalegt mál að laga skemmdirnar sem þeir gerðu á hálendinu um helgina. Hann segir ekki hægt að leggja mat á tjónið og að auk þess hafi mennirnir verið „forhertir“ þegar þeim hafi verið bent á það. Þeir hafi beðið fólk að skipta sér ekki af og verið með hroka. „Svo er það á leiðinni aftur inn í Dómadal eða upp í Landmannalaugar í gær og þá er Valdimar Flygenring, okkar allra besti leiðsögumaður og leikari, hann hitti liðið,“ segir hann og að hann hafi rætt við fólkið og þeir snúið við og hitt landvörð og svo ekið á Selfoss þar sem þeir hittu lögregluna. Sekt sé ekki nóg Páll Halldór telur að herða þurfi viðurlög við slíkum brotum. Sektargreiðsla upp á einhverja hundrað þúsund kalla sé ekki nóg og í lögum sé kveðið á um að það megi gera tæki upptæk. Hann telur að nýta ætti þá heimild. „Sektin þarf að hafa fælingarmátt,“ segir hann og að yfirleitt sé frekar auðvelt að ná til Íslendinga en erfiðara að ná til erlendu ferðamannanna. Páll Halldór segir svona utanvegaakstur oft sjást á fjörum. Það séu ekki endilega miklar skemmdir í fjöru en það megi heldur ekki. Það þurfi því að skýra vel fyrir gestum hvernig þeir eiga að haga sér og koma upp einhverju skýru verklagi um það hvernig skilaboðunum er komið til þeirra og hver viðurlögin eru. „Ég nappaði svona menn bara í fyrra í september inn við Heklu og upp á hérna Pokahrygg og það voru feðgar á þeim bílum og öll stórfjölskyldan í því,“ segir Páll og að hann hafi náð því á upptöku. Hann hafi þurft að ganga hart að þeim og telji að hann hafi mögulega getað komið í veg fyrir frekari skemmdarverk. „Þeir sáu það allavega, við erum að fylgjast með þessu fólki. Við erum löggurnar á hálendinu.“ Hann segist sjá mun á landinu frá hálendinu frá því að hann byrjaði að ferðast um það í upphafi tíunda áratugarins. Verkefnið sé að fara slóðana sem séu, ekki að búa til nýja slóða, til að njóta náttúrunnar eins og hún er. „Þessir aðilar voru forhertir og við höfum séð svona aðila af og til. Eitt er að gera mistök, eitt er að koma og vera alveg klár í slaginn.“
Utanvegaakstur Lögreglumál Ferðaþjónusta Bílar Bítið Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira