Hvetja stjórnvöld til að binda enda á „villimannslegar“ hvalveiðar Lovísa Arnardóttir skrifar 23. júní 2026 10:32 Hvalurinn verkaður í Hvalfirði í morgun. Vísir/Vilhelm Dýraverndarsamband Íslands hvetur stjórnvöld til að binda enda á „ónauðsynlegar og ómannúðlegar“ hvalveiðar hið fyrsta. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að ekki sé hægt að lýsa veiðunum öðruvísi en „villimannslegum“.
Greint var frá því í morgun að fyrsta langreyðurin sem veidd var við Ísland hafi verið dregin upp á land í Hvalfirði í morgun. Tvær langreyðar hafi verið veiddar í nótt. Í kvöldfréttum á Sýn í gær var rætt við Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness, sem sagði upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi. Segja veiðarnar tilgangslausar Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) mótmælir í yfirlýsingu harðlega þessum veiðum sem samtökin segja „ómannúðlegar og með öllu tilgangslausar“. Hvalveiðar hafi ekki verið stundaðar í tvö ár og enn séu birgðir af hvalkjöti í frystigeymslum sem enginn markaður er fyrir. „Stóra spurningin er sú hvað raunverulega vakir fyrir Kristjáni Loftssyni úr því að hann tapar aðeins fjárhagslega á veiðunum? Er það að hindra lýðræðislega kjörin stjórnvöld í því að setja lög á hvalveiðar í haust og/eða að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið seinnipartinn í ágúst í ljósi þess að Evrópusambandið bannar hvalveiðar?,“ segir í yfirlýsingunni frá samtökunum. Þá er bent þar á að fagráð um velferð dýra hafi komist að þeirri niðurstöðu þann 16. júní 2023 að veiðar á langreyðum, næststærstu dýrum jarðar á eftir steypireyðum, stæðust vart lög um velferð dýra og að engin þekkt leið væri til að drepa þessi risavöxnu spendýr á mannúðlegan hátt. „Frelsi Kristjáns Loftssonar til að halda úti þessu úrelta áhugamáli sínu var í framhaldinu, af Umboðsmanni Alþingis, metið þýðingarmeira en lög um velferð dýra. Við þetta verður ekki unað,“ segir í yfirlýsingunni og að eftirlit MAST með veiðunum 2022 og 2023 hafi sýnt að í einhver skipti hafi tekið allt að tvær klukkustundir að drepa langreyði. „Skyttur hittu dýrin illa. Í einhverjum tilfellum syntu helsærð dýr á brott og hurfu eftir að hafa verið skotin margsinnis og í öðrum tilvikum birtust kálfar þegar magi kvendýra var skorinn upp á planinu í Hvalstöðinni. Þessu verður ekki lýst öðruvísi en sem villimannslegum veiðum sem eiga sér enga stoð í nútímanum. Dýraverndarsamband Íslands hvetur íslensk stjórnvöld til að binda endi á þessar ónauðsynlegu og ómannúðlegu veiðar hið allra fyrsta,“ segir að lokum.
Hvalveiðar Hvalir Matvælaframleiðsla Matvælastofnun Dýr Umhverfismál Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira