„Dýravernd er ekki öfgaskoðun“ Smári Jökull Jónsson skrifar 23. júní 2026 12:02 Linda Karen er formaður Dýraverndarsambands Íslands en á myndinni til hægri má sjá starfsmenn Hvals hf. verka aðra þeirra langreyða sem komu á land í nótt. Vísir/Lýður Valberg/Vilhelm Formaður Dýraverndarsamtaka Íslands vill að stjórnvöld stöðvi hvalveiðar með því að afnema undanþágu Hvals hf. til að verka matvæli undir berum himni. Dýravernd séu ekki öfgaskoðanir og stöðva beri starfsemi sem feli í sér dýraníð.
Fyrstu langreyðarnar sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár komu í land í Hvalfirði í nótt. Dýraverndarsamband Íslands sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem veiðunum er mótmælt. Formaður sambandsins segir slæmt að ekki sé hlustað á fagráð um velferð dýra sem segja veiðarnar ekki standast lög og vill að stjórnvöld grípi inn í. Fimm ára leyfi til hvalveiða var gefið út í lok árs 2024 af þáverandi ráðherra Bjarna Benediktssyni. „Það er samt ýmislegt sem hefði verið hægt að gera áður en veiðar hófust. Til dæmis að taka í burtu þá undanþágu sem Hvalur hf. hefur varðandi að þeir mega verka þessi matvæli undir berum himni. Þetta er ekki leyfilegt í neinni annarri matvælaframleiðslu,“ segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. „Þá ber að ljúka slíkri starfsemi“ Hún gefur lítið fyrir þau orð Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness, að illa væri farið fyrir Íslendingum ef öfgaskoðanir öfgafólks hefðu áhrif á ákvarðanatökur. „Dýravernd er ekki öfgaskoðanir. Við þurfum að gera ráð fyrir dýrum í okkar samfélagi. Það er samfélagsleg ábyrgð okkar allra að fara vel með dýr. Ef starfsemi byggir á því að það felur í sér dýraníð, og stórfellt dýraníð eins og á við varðandi hvalveiðar, þá ber að ljúka slíkri starfsemi.“ Linda segir birgðir til af hvalkjöti frá veiðum fyrir þremur árum síðan og veltir fyrir sér af hverju veiðarniar séu stundaðar. Hún segir að góður hljómgrunnur sé fyrir málstað dýraverndarsamtaka. „Íslendingar vilja velferð dýra. Við finnum það mjög sterkt í Dýraverndarsambandi Íslands að fólk fólk vill dýravernd,“ segir Linda Karen.
Hvalveiðar Hvalir Dýr Atvinnurekendur Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira