Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Lovísa Arnardóttir skrifar 24. júní 2026 08:40 Guðný María tók við umhverfis- og skipulagsráði eftir kosningar. Aðsend og Vísir/Vilhelm Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, segir þurfa að finna Kaffistofu Samhjálpar nýjan stað þar sem meiri sátt er við nágrenni og samfélag. Þjónustan sé samfélagslega mikilvæg en við flutning hennar hefði mátt vinna málið betur.
Greint var frá því í gær að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefði fellt úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá því í mars um að gefa Samhjálp leyfi til að endurinnrétta húsnæði við Grensásveg 46 fyrir nýja Kaffistofu. Í úrskurði nefndarinnar segir að borgin hefði átt að fara í deiliskipulag á reitnum fyrir samþykkt byggingarleyfis vegna mögulegra grenndaráhrifa. Næstu skref óljós Framkvæmdastýra Samhjálpar sagði í kvöldfréttum Sýnar óljóst hvað niðurstaðan þýði fyrir gesti Samhjálpar en ljóst að hún hafi áhrif á fyrirhugaða opnun kaffistofunnar sem áætluð var seinna í þessum mánuði. Hún sagði nokkuð ljóst að borgin þurfi að leggjast betur yfir málið. Rætt var við Guðnýju Maríu um málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær en hún er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og tók við ráðinu eftir kosningar. Þar sagði hún nýjan meirihluta hafa unnið að þessu máli frá því þau tóku við. Eitt af hennar fyrstu verkum hafi verið að taka á móti íbúum og hlusta á þeirra hlið. Hún segir Sjálfstæðisflokkinn hafa bókað við afgreiðslu málsins að það væri ekki verið að taka tillit til athugasemda íbúa en á sama tíma sé þessi þjónusta samfélagslega mikilvæg og það sé ljóst að það þurfi að finna kaffistofunni stað sem sé í sátt við næsta nágrenni og samfélagið. Hefði átt að vinna málið betur Guðný María segir nýjan meirihluta þurfa að funda með Samhjálp og skoða hvað sé hægt að gera í stöðunni og finna þessari þjónustu nýjan stað. „Og ræða það hvernig við vinnum þetta áfram.“ Hún segir úrskurð nefndarinnar sýna að vinna hefði málið betur og nefnir að til dæmis hafi ekki farið fram hagsmunamat á áhrifum á börn. „Það þarf að finna þessari þjónustu góðan stað.“ Spurð hvort þetta sé akút segir Guðný María að það hafi farið fram vinna við að finna þjónustunni staðsetningu og að það þurfi að taka þann þráð aftur upp. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri ætli að funda með þeim á morgun, fimmtudag, til að ræða þessa hluti. „Nú er komin upp óvissa,“ segir hún og að Samhjálp hafi þegar innréttað rýmið. Framkvæmdastýra sagði í viðtali í gær að framkvæmdum væri nærri lokið og þær hefðu kostað tugi milljóna. Guðný María segir mikilvægt að huga að því hvaða staðsetning hentar fyrir þau sem sækja þjónustu Samhjálpar. Kaffistofa Samhjálpar er opin allan ársins hring frá klukkan 10 til 14 og er í boði að koma þangað og fá morgunmat og hádegismat gjaldfrjálst. Um 300 til 400 máltíðir eru afgreiddar daglega og er hópurinn sem sækir þjónustuna afar fjölbreyttur en þangað leita til dæmis heimilislausir, hælisleitendur og fólk sem ekki hefur efni á mat. Guðný María segir að málið verði unnið hratt. Það sé stefna meirihlutans að gera það.
Kaffistofa Samhjálpar Borgarstjórn Reykjavík síðdegis Sjálfstæðisflokkurinn Efnahagsmál Fíkn Hælisleitendur Málefni heimilislausra Tengdar fréttir Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Vinna úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er á lokastigi hvað varðar kærur frá íbúum vegna málsmeðferðar Reykjavíkurborgar á flutningi Kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg 46. Nefndin sér fram á að ljúka sinni vinnu fyrir mánaðamót en Samhjálp stefnir á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði. 10. júní 2026 06:32 Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Fimm kærur hafa verið lagðar fram vegna fyrirhugaðs flutnings Kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46. Íbúar lýsa yfir áhyggjum af því að starfsemi verði hafin í húsinu áður en niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála liggur fyrir. Undirskriftasöfnun stendur yfir á island.is og hópur íbúa krafði framboðin um svör fyrir borgarstjórnarkosningar. 7. júní 2026 17:25 Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Íbúar í hverfi 108 lýstu á íbúafundi í gær yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Reykjavíkurborgar um að heimila staðsetningu Kaffistofu Samhjálpar á Grensásvegi. Um 200 íbúar samþykktu ályktun gegn flutningi kaffistofunnar og vilja að henni verði fundin hentugri staðsetning. 28. apríl 2026 12:32 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira
Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Vinna úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er á lokastigi hvað varðar kærur frá íbúum vegna málsmeðferðar Reykjavíkurborgar á flutningi Kaffistofu Samhjálpar á Grensásveg 46. Nefndin sér fram á að ljúka sinni vinnu fyrir mánaðamót en Samhjálp stefnir á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði. 10. júní 2026 06:32
Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Fimm kærur hafa verið lagðar fram vegna fyrirhugaðs flutnings Kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46. Íbúar lýsa yfir áhyggjum af því að starfsemi verði hafin í húsinu áður en niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála liggur fyrir. Undirskriftasöfnun stendur yfir á island.is og hópur íbúa krafði framboðin um svör fyrir borgarstjórnarkosningar. 7. júní 2026 17:25
Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Íbúar í hverfi 108 lýstu á íbúafundi í gær yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Reykjavíkurborgar um að heimila staðsetningu Kaffistofu Samhjálpar á Grensásvegi. Um 200 íbúar samþykktu ályktun gegn flutningi kaffistofunnar og vilja að henni verði fundin hentugri staðsetning. 28. apríl 2026 12:32