Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Lovísa Arnardóttir skrifar 24. júní 2026 10:32 Guðný segir að strax hafi verið settar upp merkingar. Vísir/Bjarni Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, segir þörf á gangstéttarviðgerðum í Reykjavík fyrir allt að tvo milljarða. Það séu aðeins þær gangstéttir sem verst farnar eru.
Rætt var við Guðnýju í Reykjavík síðdegis í gær en þar fór hún yfir viðbrögð meirihlutans við slysi í Langarima í Grafarvogi. Guðný sagði að þegar greint hafi verið frá slysi konunnar um helgina hafi ráðið tekið fyrir framkvæmdaáætlun um gangstéttarviðgerðir og sett af stað merkingar við gangstéttina. Svo hafi framkvæmdir hafist. „Þessi framkvæmd átti að fara fram í ágúst og við ýttum henni framar,“ segir Guðný María og að staðan sé víða slæm. Íbúar hafi haft samband vegna slæmra gangstétta en hafi fengið lítil viðbrögð. „Það sem við gerðum, og settum á okkar verkefnalista, er að fara í átakslista að fara í gangstéttarviðgerðir,“ segir hún og að það sé víða þörf á viðgerðum. Ástandið sé metið og litakóðað og það sé áætlun ráðsins að ef teknar eru saman þær gangstéttir sem þarfnast mestrar viðgerðar kosti það um 2,2 milljarða. „Þetta eru stórar upphæðir og við þurfum að fara í það strax í áætlanagerð í haust að skoða hvað við getum gert til að forgangsraða og finna fjármuni.“ Þrif á götum og strætó Guðný María segir nýja borgarfulltrúa vinna að því að koma sér inn í málin. Hún sé með umhverfis- og skipulagssvið sem sé breitt svið með víðtækum verkefnum sem margir hafi skoðanir á. Hún segir hópinn hlaupa hratt af stað og setja sig inn í málin. Guðný María er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. Aðsend Guðný María segist einnig hafa skoðað götuþrif og að þau sem sinni slíkri þjónustu segist telja sig geta gert það betur. Síðasta vetur hafi átt að rykbinda en hún telji að betra sé að þrífa. Hún segir þurfa að skoða þessi mál í samráði við Vegagerðina. „Þetta snýst allt um peninga, þannig að nú þurfum við bara að fá smá tíma til þess að átta okkur á því hvað við getum ráðist hratt í þessi verkefni og fundið fjármagn í þau.“ Guðný María ræddi einnig stöðu Strætó, nýtt félag sem tekur við rekstrinum 1. júlí og að það séu möguleikar í kerfinu til að bæta til dæmis upplýsingagjöf.
Borgarstjórn Reykjavík síðdegis Skipulagsmál Umferð Vegagerð Strætó Umferðaröryggi Slysavarnir Tengdar fréttir „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Kona á tíræðisaldri slasaðist í Grafarvogi þegar hún flaug úr hjólastól sínum á sprunginni gangstétt í hverfinu þar sem hún var á leið í klippingu. Sonur konunnar kallar eftir því að borgaryfirvöld bregðist strax við og geri við gangstéttina þar sem hafi orðið mörg slys. 21. júní 2026 10:40 Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður Sjá meira
„Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Kona á tíræðisaldri slasaðist í Grafarvogi þegar hún flaug úr hjólastól sínum á sprunginni gangstétt í hverfinu þar sem hún var á leið í klippingu. Sonur konunnar kallar eftir því að borgaryfirvöld bregðist strax við og geri við gangstéttina þar sem hafi orðið mörg slys. 21. júní 2026 10:40