„Við stöndum öll með starfsemi Samhjálpar“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. júní 2026 12:01 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Vísir/Vilhelm Borgarstjóri segir aðstöðumál Samhjálpar séu afar snúin en hún vonist til að farsæl lausn finnist í málinu og tekið verði á því af festu. Hún mun funda með framkvæmdastjóra Samhjálpar á morgun.
Greint var frá því í gær að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefði fellt úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá því í mars um að gefa Samhjálp leyfi til að opna nýja kaffistofu á Grensávegi sem ráðgert var að opna þar síðar í mánuðinum. Segir þar að borgin hefði átt að fara í deiluskipulag á reitnum fyrir samþykkt byggingarleyfis vegna mögulegra grenndaráhrifa en opnun kaffistofunnar hefur reynst afar umdeild meðal íbúa. Framkvæmdastýra Samhjálpar sagði í kvöldfréttum Sýnar í gær að óljóst sé hvað tekur við. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir miklu máli skipta að finna starfsemi Samhjálpar réttan stað. „Þetta er auðvitað erfitt mál því við stöndum öll með starfsemi Samhjálpar og með Kaffistofunni en það skiptir máli að finna henni réttan stað. Við fengum þennan úrskurð í hendur í gær og okkar fólk er auðvitað að rýna hann og við höfum óskað eftir kynningu á niðurstöðunni á næsta fundi Borgarráðssem er á fimmtudaginn. Ég mun jafnframt síðdegis á morgun eiga fund með Samhjálp og stóð nú reyndar til, sá fundur, ja áður en úrskurðurinn féll, en þar gefst okkur tækifæri til að ræða framtíðarlausnir.“ Kaffistofa Samhjálpar er tímabundið í húsnæði Fíladelfíu og ljóst að tíma hefur tekið að finna nýtt húsnæði. Hildur segist bjartsýn að eðlisfari og að hún bindi vonir við að farsæl lausn finnist á málinu en formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur sagði í Bítinu að vinna hefði mátt málið betur. „Það er ofsalega margt sem við þurfum að hugsa upp á nýtt þegar nýr meirihluti tekur við og þetta er auðvitað eitt af því, og bara velferðarmálin öll. Við þurfum að hugsa hvernig við stöndum vel að þessum málaflokki og búum vel að fólkinu sem sækir þjónustu velferðarsviðs og ssvo aðra tengda þjónustu, þannig að jú jú við munum skoða þetta eins og allt annað en eftir situr að við þurfum að finna kaffistofu Samhjálpar góðan stað og stöndum auðvitað með starfseminni og vitum að þangað hefur margt fólk sótt góða þjónustu.“ Geturðu gefið einhvern tímaramma? Veistu hvað þetta mun taka langan tíma allt saman? „Það er auðvitað erfitt að segja og við eigum auðvitað eftir að fá þessa umræðu inn í borgarráð á fimmtudaginn og ég á eftir að taka fundinn með Samhjálp, þannig við eigum aðeins eftir að ná að kortleggja stöðuna, en ég mun allavega leggja áherslu á að það verði engar tafir á málinu og að það vinnist eins hratt og vel og hægt er.“
Kaffistofa Samhjálpar Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira