Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 24. júní 2026 18:54 Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. vísir/vilhelm Forsætisráðherra segist ekki forðast umræðu um skattamál. Breytingar á skattkerfinu geti sumum þótt leikur að orðum. Hún segir það algjörlega ljóst að ríkisstjórnin hafi ekki hækkað skatta.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var gestur Íslands í dag á Sýn í gærkvöld þar sem hún fór yfir störf þingsins, efnahagsmálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst. Sagðist hún stolt af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum þrátt fyrir að hún hefði vonað að vextir og verðbólga væru lægri. Finnst þér ekkert erfitt að horfa í augun á landsmönnum og biðja þá um að sýna biðlund þegar kemur að efnahagsmálum - þegar undir er veski landsmanna? „Það þarf úthald í stjórnmálum og það þarf líka úthald til að skipta um kúrs. Það hefur ýmislegt gerst. Það hafa lækkað hér ríkisskuldir um sjö og hálft prósent á landsframleiðslu. Það er búið að fara í stórvægilegar breytingar þegar kemur að ríkisfjármálunum ef við sjáum bara hvernig samsetning þeirra er farandi inn í til dæmis árið 2027. Það væri ekki annars hægt að fara í hallaleysi, það liggur alveg fyrir og fólk auðvitað finnur fyrir því. Ef fólk væri ekki að finna fyrir því þá væri þetta ekki að hafa áhrif.“ Hún segist skilja að fólk sé óþolinmótt upp að vissu marki en segist vita að fólk finni fyrir því hverjir séu að stjórna. Kristrún Frostadóttir Er ekki smá partur af þér sem óttast að mögulega gangi þetta ekki upp? Stendurðu alveg keik, getur þú horft í augun á landsmönnum og sagt: „Planið mitt mun ganga, þetta verður betra.“ „Planið er byrjað að ganga og ég hvet bara alla landsmenn og fjölmiðlamenn til að kynna sér útspil Samfylkingarinnar í aðdraganda kosninga, orkumálin. Við erum búin að samþykkja tvo ramma á þessu ári. Það voru erfiðleikar eiginlega allt síðasta kjörtímabil að klára rammamálin,“ segir Kristrún. En nú er ég að spyrja út í efnahagsmálin? „Já, en málið er að efnahagsmálin eru ekki bara eini parturinn af þessu plani, vegna þess að orkumálin eru stór hluti af hagvaxtargetu kerfisins. Ef það á að laga efnahagsmálin, ef það á að taka til í efnahagsmálunum, þá þurfum við að vinna í hagvaxtargetunni líka. Það sama á við í heilbrigðismálum, sem við vorum líka kosin út á og Alma hefur staðið sig stórkostlega í því á mörgum sviðum heilbrigðismálanna. Það er eins í húsnæðismálunum, sem er nú stór partur af efnahagsmálunum. Við samþykktum hérna frumvarp til að hemja á Airbnb, ný húsaleigulög, við erum með ákvæði inni núna eftir nýja löggjöf sem á að koma í veg fyrir brask á húsnæðismarkaði“ segir Kristrún. Þið sögðuð í aðdraganda kosninga að þið mynduð ekki hækka skatta á venjulegt fólk. Um ykkar aðgerðir í skattamálum hefur verið deilt og segja sumir að þær séu í raun skattahækkanir þó að þið kallið þær annað; leiðréttingu eða breytingu. Hvernig svarar þú því? Hafiði hækkað skatta? „Ég veit alveg hvernig tölurnar líta út og það kemur mjög augljóslega fram í fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar, að sértækar tekjuaðgerðir sem er það sem einhverjir gætu vitnað í sem skatta eða gjöld, þær eru ekki umfangsmeiri en á tímabili síðustu ríkisstjórnar.“ Samsetning gjaldanna eða skattana sé öðruvísi. „Við erum að draga úr álögum á almennar neytendur. Við erum ekki að fara í jafn bratta kílómetragjaldshækkun eins og síðasta ríkisstjórn ætlaði í. Ég veit að það hefur verið mikið rætt um kílómetragjaldið en síðasta ríkisstjórn ætlaði að fjármagna öll sín framtíðarútgjöld með miklum hækkunum á kílómetragjaldinu en þorði svo aldrei að láta það verða að veruleika og var með mikið af ófjármögnuðum loforðum.“ „Við fórum já í leiðréttingu veiðigjalds sem ég er mjög stolt af. Við höfum talað um að vera með auðlindagjöld sem er partur af okkar pólitík. Við erum í haust að fara að leggja fram með atvinnuvegaráðherra frumvarp sem snýr að gjaldtöku í ferðaþjónustu sem margir hafa talað um í langan tíma.“ Svona sé bara pólitíkin Hún segir um auðlindapólitík að ræða en segir að almenningur ætti ekki að hafa fundið fyrir sértækri gjaldahækkun umfram það sem þegar er í kerfinu. „Ég veit hins vegar alveg hvernig pólitík er. Minnihlutinn sakar okkur alltaf um skattahækkanir, jafnvel þó við séum ekki að gera annað en það sem kannski lá áður í loftinu eða breyta aðeins samsetningunni. Svona er bara pólitík. Við tökum alveg að okkur þetta aðhald og það er bara í góðu lagi.“ Ég heyri að þú tekur ekki alveg fyrir að þetta séu skattahækkanir. Hvers vegna er svona mikið tabú um orðið skattahækkun. Er ekki eðlilegt að flokkur eins og Samfylkingin, sem ekki er hægriflokkur, grípi til skattahækkana. Hvers vegna er þessi leikur að orðum? „Ég er ekki mótfallin nýtingu á skattkerfinu, ég hef sagt það víða. Mér finnst ekkert óþægilegt að tala um skatta.“ Leikur að orðum En af hverju viðurkennið þið þá ekki að þið séuð að hækka skatta? „Af því við erum ekki að hækka skatta Elísabet. Við erum ekki að hækka virðisaukaskatt, nema reyndar við erum að hækka eða taka ívilnun úr lægra skattþrepi á baðlón í landinu. Baðlón eru að borga lægri skatta en almennar vörur í virðisauka. Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt af öðrum verðum. Þetta er allt leikur að orðum. Við erum ekki að hækka tekjuskatt á íslenskan almenning, við erum ekki að hækka tekjuskatta á lögaðila í landinu. Við erum ekki að hækka fjármagnstekjuskatt. Við gætum alveg rætt það hvort við ættum að breyta þessu skattstigi og ég þori alveg að taka þá umræðu.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir „Planið“ sé byrjað að virka Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Íslands í dag á Sýn í kvöld þar sem hún sest niður með Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttamanni og fer meðal annars yfir störf þingsins á liðnum vetri, efnahagsmálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst. 23. júní 2026 14:24 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira
„Planið“ sé byrjað að virka Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Íslands í dag á Sýn í kvöld þar sem hún sest niður með Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttamanni og fer meðal annars yfir störf þingsins á liðnum vetri, efnahagsmálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst. 23. júní 2026 14:24