Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2026 13:00 Peter Öqvist á dögum sínum sem landsliðsþjálfari Íslands í körfubolta. Vísir/Daníel Peter Öqvist er fyrrverandi þjálfari karlalandsliðs Íslands í körfubolta og á mikinn þátt í uppgangi íslenska landsliðsins á síðustu árum. Hann hefur líka fylgst vel með íslenska liðinu eftir að hann hætti og Craig Pedersen tók við.
Öqvist var staddur á landinu á dögunum þegar FIBA Europe þingið var haldið í Reykjavík. Heimasíða Körfuknattleikssambands Íslands tók viðtal við kappann. Sænski þjálfarinn var með íslenska landsliðið frá 2010 til 2013 og skilaði af sér góðu búi til Craig Pedersen sem hefur síðan náð sögulegum árangri með íslenska landsliðið og skilað því inn á þrjú Evrópumót. Alltaf gott að koma til Íslands „Mér finnst alltaf gott að koma til Íslands vegna þess að ég á margar hlýjar og góðar minningar frá árunum sem landsliðsþjálfari,“ segir Öqvist sem í dag starfar sem framkvæmdastjóri sænska körfuknattleikssambandsins og sat áður í stjórn sambandsins í heimalandinu. Svíinn hefur fylgst grannt með íslenska karlalandsliðinu frá því hann stýrði því sjálfur. Fylgist vel með íslenska landsliðinu „Ég fylgdist að sjálfsögðu vel með landsliðinu í framhaldinu og geri enn. Ég á það til að senda Craig [Pedersen, núverandi landsliðsþjálfara] skilaboð eftir leiki. Ég naut þess sérstaklega að sjá sigurinn gegn Litháum í síðasta landsleikjaglugga í vetur,“ segir Öqvist en leikmennirnir sem komu Íslandi í úrslit í lokakeppni í fyrsta sinn í Berlín árið 2015 voru mikið til sömu leikmenn og Öqvist hafði stýrt landsliðinu. „Því að sjá liðið ná þeim áfanga fylgdi stórkostleg tilfinning fyrir mig. Að mínu mati hafa Craig, og samstarfsfólk hans, unnið frábærlega úr því sem við fórum af stað með á sínum tíma. Hann þróaði liðið og gerði það betra,“ sagði Öqvist. Craig Pedersen hefur nú stýrt íslenska landsliðinu í þrettán ár og alls í 112 leikjum. Liðið spilaði 26 leiki undir stjórn Öqvist. Passar enn upp á myndskeiðið „Það var virkilega skemmtilegt að fylgjast með liðinu í sjónvarpi á EM 2015 en það var enn skemmtilegra fyrir mig þegar Ísland var með á EM 2017 því þá hafði ég tök á því að fara til Helsinki,“ sagði Öqvist og eins og hjá fleirum í íslensku körfuboltafjölskyldunni þá var upplifunin eftirminnileg. „Síðasti leikurinn í riðlinum á milli Finna og Íslendinga var stórkostleg stund fyrir körfuboltann á Norðurlöndunum. Höllin var stútfull og þegar finnsku stuðningsmennirnir tóku undir víkingaklappið hjá íslensku stuðningsmönnunum þá varð til einhver fegurð sem maður gleymir seint. Ég passa raunar enn upp á myndskeiðið sem ég tók í því andrúmslofti,“ sagði Öqvist en það má lesa allt viðtalið hér fyrir neðan.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Fleiri fréttir Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Sjá meira