Mikill niðurskurður á skrifstofu borgarstjóra Tómas Arnar Þorláksson skrifar 25. júní 2026 16:00 Hildur Björnsdótttir er borgarstjóri Reykjavíkur. vísir/vilhelm Nýr meirihluti Reykjavíkurborgar reiknar með að spara um 300 milljónir á ári hverju á grundvelli hópuppsagnar sem ráðist var í í dag. Starfsfólki á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara fækkar um 40 prósent. Átján störf verða lögð niður og níu störf færð milli sviða eða skrifstofa innan borgarinnar. „
Borgarráð samþykkti í dag umfangsmiklar skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Tillögurnar eru liður í markmiðum stýrihóps meirihlutans um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Markmið breytinganna er að einfalda stjórnsýslu, stytta boðleiðir, draga úr yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur. Um leið verði staðið vörð um framlínuþjónustu.“ Þetta segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Eins og greint hefur verið frá var samþykkt á fundi borgarráðs í dag að leggja niður skrifstofu samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg og mannréttindaskrifstofu borgarinnar. Um tuttugu manns hefur verið sagt upp. Hópuppsögn og sparnaður Í tilkynningu frá borginni segir að breytingarnar hafi áhrif á 27 stöðugildi af 42 á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara en þar undir heyra skrifstofa samskipta og viðburða og mannréttindaskrifstofa. Níu störf eru færð milli sviða en átján störf lögð niður. Eftir því sem fram kemur er gert ráð fyrir því að ráðið verði í einhver af nýjum stöðum eftir því sem innleiðingunni vindur fram. Þá verður einhverjum verkefnum útvistað. „Starfsfólki skrifstofunnar mun eftir að breytingar hafa að fullu komist til framkvæmda, hafa fækkað um minnst 40%. Um hópuppsögn er að ræða og hefur Vinnumálastofnun verið upplýst,“ segir í tilkynningunni. Borgin reiknar með að umræddar breytingar muni lækka rekstrarkostnað borgarinnar um 280 til 330 milljónir króna á ári hverju. „Ég hét því að gera breytingar og taka til hendinni í rekstri borgarinnar. Það er eðlilegt að ég horfi fyrst til þeirra verkefna sem standa mér næst í þeim efnum, hér á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Þessar ákvarðanir eru hvorki einfaldar né teknar af léttúð. Rekstur borgarinnar stendur hins vegar að óbreyttu ekki undir lögbundinni þjónustu, nauðsynlegum fjárfestingum og mikilvægu viðhaldi innviða. Þess vegna reynast þessar aðgerðir nauðsynlegar,“ er haft eftir Hildi Björnsdóttur í tilkynningunni. Ráðast í enn fleiri aðgerðir á næstunni Þá kemur fram að samhliða hópuppsögninni verði skerpt á ráðningarbanni og viðveruskyldu innan miðlægrar stjórnsýslu. Þá er stefnt að því að draga úr ferðalögum borgarstarfsmanna. Þá verður því fyrirkomulagi komið fyrir að ferðaheimildir þurfa að vera samþykktar af skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. „Gert er ráð fyrir að ofangreindar breytingar taki gildi frá og með 1. júlí nk. Á næstu vikum og mánuðum munu frekari tillögur er snúa að öðrum þáttum í rekstri borgarinnar verða kynntar af hagræðingarhópi borgarstjóra sem er að störfum.“ „Stefnumótunar- og þróunarteymi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara verður lagt niður og helstu verkefnum á borð við rannsóknarþjónustu, verkefnastýringu lýðheilsumála og Græna plani verður hætt. Atvinnuþróun mun færast til umhverfis- og skipulagssviðs og ytri nýsköpun til þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Verkefni á borð við samhæfingu stefnumótunar, persónuvernd og alþjóðamál verða áfram á skrifstofunni en með breyttum áherslum,“ segir í tilkynningunni. Viðburðarteymi borgarinnar færist til menningar- og íþróttasviðs. Stefnt sé að því að byggja upp minna fagteymi miðlunar með áherslu á stafrænar lausnir, markaðsmál og upplýsingamiðlun. Eins og áður segir heyrir mannrétinndaskrifstofa borgarinnar sögunni til. „Mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð verða lögð niður og lögbundin verkefni áfram tryggð og færð nær þeim sviðum sem sinna viðkomandi þjónustu. Borgarráð mun fara með jafnréttismál sveitarfélagsins. Verkefni sem tengjast innflytjendum, fólki af erlendum uppruna, ofbeldisvörnum og Bjarkarhlíð verða færð til velferðarsviðs. Verkefni sem snúa að hinsegin fræðslu og stuðningi við hinsegin börn og ungmenni verða færð til skóla- og frístundasviðs. Jafnframt verður stofnað öldunga- og aðgengisráð Reykjavíkurborgar sem sinnir lögbundnu samráðs- og ráðgjafarhlutverki gagnvart eldra fólki og fötluðu fólki.“ Uppfært 2. júlí Vinnumálastofnun greindi frá því þann 2. júlí að aðeins ein hópuppsögn hefði verið á landinu í júní. Uppsögnin hjá Reykjavíkurborg hefur ekki uppfyllt skilyrði um fjölda til að teljast til hópuppsagnar.
Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Vinnumarkaður Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira